Um helgina vann O (Hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarsson tvenn alþjóðleg kvikmyndaverðlaun.
Á kvikmyndahátíðinni í Vilníus í Litáen var myndin valin sú besta í flokki stuttra mynda.
„Við höfum verið svo heppin að horfa á kvikmynd sem snerti okkur djúpt og skildi eftir tilfinningar hjá okkur í langan tíma á eftir. Við töldum þessa mynd vera afrek í notkun á klassísku kvikmyndatungumáli og hvernig það er notað til að kafa djúpt niður í hringiðu fíknarinnar,” segir í umsögn dómnefndar.
O (Hringur) hlaut jafnframt verðlaun kvikmyndagagnrýnenda í Québec í Kanada á REGARD, the Saguenay alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni.
O (Hringur) var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Eru þetta sjöttu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar og er hún einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025. Með aðalhlutverkið í O (Hringur) fer Ingvar E. Sigurðsson og er myndin framleidd af Heather Millard.