Lewis gerði garðinn frægan með 80‘s hljómsveitunum Femme Fatale og Vixen á sínum tíma.
Í viðtali við hlaðvarpsþáttinn The Chuck Shute segir Lewis að viðtökurnar hafi farið fram úr hennar björtustu vonum. Hún hafi lengi átt sér þann draum að byrja á OnlyFans en ekki þorað að láta slag standa fyrr en nú.
„Mér finnst þetta mjög svalur vettvangur og þú getur gert það sem þú vilt þar. Það halda margir að þetta sé bara klám en það er ekki þannig, það þarf ekki að vera þannig,“ segir hún og bætir við að hún muni nota OnlyFans til að birta kynþokkafullt efni.
Hún segist nú þegar vera komin með 500 áskrifendur sem hver borgar tuttugu dollara í mánaðargjald. Miðað við að OnlyFans tekur 20% þóknun ætti Lewis að fá um átta þúsund dollara á mánuði, eða rúmlega 1,1 milljón króna.
Í viðtalinu sagði Lewis að hún væri bara rétt að byrja og hún segist blása á allar gagnrýnisraddir. Hún sé stolt af sér fyrir að hafa tekið þetta skref. „Ég stjórna því sem ég geri og ég skemmti mér mjög vel,“ segir hún.