Magnús Kjartan Eyjólfsson, tónlistarmaður og aðalsöngvari Stuðlabandsins, greindist fyrir ári síðan með bráðaeitilfrumuhvítblæði.
Unnusta hans, Sigríður Jónsdóttir, greindi frá veikindum Magnúsar í færslu á Facebook. Hún sagði þau þakklát fyrir að meinið hafi greinst á byrjunarstigi, en ljóst að framundan væri nýr veruleiki og stærsta verkefni fjölskyldunnar til þessa.
Magnús Kjartan fagnaði svo 41 árs afmæli sínu nokkrum dögum síðar.
Sjá einnig: Magnús Kjartan greindur með hvítblæði – „Við finnum stuðninginn og tökum þessu verkefni af fullum þunga“
Í dag birti Magnús Kjartan færslu þar sem hann minnir á að lífið er núna.
„1 ár. Í dag er 1 ár síðan ég ætlaði rétt að skjótast til læknis í hádeginu og endaði á sjúkrahúsi í 5 vikur. 1 ár síðan ég fékk þær súrrealísku fréttir að ég væri með bráðaeitilfrumuhvítblæði sem btw er svakalega langt orð,“ segir Magnús Kjartan.
„En það er líka 1 ár síðan ég fékk það staðfest að á Íslandi er til alveg svakalega margt hjartahlýtt og hjálpsamt fólk. Hvort sem það voru hughreystandi orð eða óumbeðnar gjörðir þá gjörsamlega rigndi þeim yfir okkur og fyrir það get ég líklegast seint fullþakkað.“
Segir hann nánustu fjölskyldu og vini hafa sýnt hreint út sagt ótrúlegan styrk á erfiðum og krefjandi tímum og séð til þess að hann hafi getað sett allan minn kraft í að verða betri. Þakkar hann unnustu sinni, Sigríði, sérstaklega fyrir og segir: „held að ég eigi engin orð til að lýsa þeim styrk sem hún hefur sýnt. Ég veit ekki um margar manneskjur sem gætu tekið svona álag á bakið og staðið uppréttar. Þú ert sterkasta og besta manneskja sem ég þekki og ég elska þig óendanlega.“
Magnús Kjartan hefur verið í sjúkdómshléi frá því í apríl og byrjaði í viðhaldsmeðferð í desember.
„Auðvitað hafa þetta ekki alltaf verið sólskin og sleikipinnar en eins og staðan er núna styttist í endamarkið. Ég hef verið í sjúkdómshléi síðan í apríl og byrjaði í viðhaldsmeðferð í desember svo ég vil meina að ég sé lagður af stað niður brekkuna.“
Magnús Kjartan þakkar fyrir öll fallegu orðin og alla aðstoðina, og segist bara vona að hann geti seinna meir veitt sömu aðstoð og haldið keðjunni gangandi.