Baena fannst látinn á heimili sínu í Los Angeles af völdum sjálfsvígs.
Plaza og Baena höfðu verið saman frá árinu 2011 og gengu þau í það heilaga árið 2021.
Plaza tjáði sig um málið í stuttri yfirlýsingu í gegnum umboðsmann sinn þar sem hún sagði að um ólýsanlegan harmleik sé að ræða. „Við erum mjög þakklát fyrir allan þann stuðning sem okkur hefur verið sýndur. Vinsamlegast virðið friðhelgi okkar á þessum erfiða tíma.“
Plaza og Baena unnu saman í nokkrum verkefnum, til dæmis kvikmyndinni Life After Beth árið 2014, The Little Hours árið 2017 og Spin Me Round frá árinu 2022.
Til stóð að Plaza væri kynnir á Golden Globes-verðlaunahátíðinni síðastliðinn sunnudag en eðli málsins samkvæmt var hún ekki viðstödd hátíðina.
–
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.