Það eru margir sem ætla að hringja inn nýja árið með því að taka þátt í þurrum janúar en átakið nýtur orðið mikilla vinsælda á heimsvísu. Um 25 prósent Bandaríkjamanna eru taldir hafa tekið þátt á síðasta ári og líklega mun fjöldinn bara aukast í ár. Að sama skapi hafa margir Íslendingar tekið áskoruninni fagnandi þó ekki séu til tölur yfir þátttökuna.
Neysla áfengis er stórt lýðheilsuvandamál og afleiðingar neyslunnar er orðin ein helsta dánarorsök í hinum vestræna heimi. Að sleppa áfengi í einn mánuð mun hafa afar jákvæðar afleiðingar og margir sem upplifa svo miklar breytingar að tappinn er aldrei tekinn af aftur.
Svona er líklegt að þurr janúar þróast ef fólk heldur sér við efnið.
Fyrsta vikan
Samkvæmt sérfræðingunum er fyrsta vikan sú erfiðasta ef áfengi er hluti af vikulegri rútínu þinni. Hins vegar ef fólk kemst í gegnum þessa viku ætti það að taka eftir því að meiri regla kemst á svefninn – sem gæti þýtt að það sé erfiðara að sofna til að byrja með, sérstaklega hjá þeim sem eru vanir að fá sér einn fyrir svefninn. Áfengi fær fólk til að sofna hraðar, en á sama tíma dregur það úr svefngæðum.
Án áfengis eru líka meiri líkur á því að fólk borði hollari mat og minni líkur á að grípa skyndibita. Vökvastaðan í líkamanum verður líka betri þar sem áfengi þurrkar okkur upp.
Ef þú sleppir áfenginu ættir þú líka að taka eftir því að það verður auðveldara að halda einbeitingu og þú verður síður þreytt
Önnur vikan
Á viku tvö finnur fólk líklega vel fyrir betri svefngæðum og betri nýtingu á vökva.
Þú finnur fyrir meiri drifkrafti og húðin þín lítur betri út – lítur ekki út fyrir að vera bjúguð heldur heilbrigð.
Þeir sem glíma við bakflæði eða brjóstsviða ættu líka að finna minna fyrir því án áfengisins sem er gjarnt á að valda erting í maganum.
Þriðja vikan
Samkvæmt sérfræðingunum ættu sumir að taka eftir lægri blóðþrýsting á þriðju vikunni. Aðrir gætu líka verið léttari á sér enda margar hitaeiningar í áfengum drykkjum.
Fjórða vikan
Á þessum tíma máttu klappa sjálfu þér vel á bakið og þér líður líklega mjög vel líka. Húðin þín lítur án efa betur út, þar sem bólur eiga það til að hverfa sem og húðþurrkur
Sérfræðingarnir benda einnig á að þeir sem hafi varið töluverðu fé til áfengiskaupa ættu nú að hafa meira á milli handanna en ella og jafnvel gæti skapið verið orðið betra.