Bonnie hefur verið talsvert á milli tannanna hjá fólki, þá sérstaklega fyrir að sækjast eftir því að sænga hjá karlmönnum sem eru rétt skriðnir yfir átján ára, en nú síðast vegna þess að hún sló nýtt heimsmet þegar hún svaf hjá 1057 karlmönnum á tólf tímum.
Sjá einnig: Sló heimsmetið og svaf hjá 1057 karlmönnum á 12 tímum – Svona fór hún að því
Allir virðast hafa skoðun á Bonnie og hefur hún og gjörðir hennar verið mikið til umræðu á samfélagsmiðlum og fjalla einnig fjölmiðlar um allan heim um hana. Fólk virðist elska að hata hana og vill vita allt sem það getur um hana.
Það vakti því mikla athygli þegar fyrrverandi píparinn og núverandi klámstjarnan Andy Lee opnaði sig um fund hans með Bonnie Blue. Hann sagði að Bonnie sem við þekkjum sé karakter og hún sé allt öðruvísi þegar myndavélarnar hætta að rúlla.
„Þegar hún er ekki í tökum er hún mjög hljóðlát og ljúf, en um leið og það er kveikt á myndavélinni kemur kynlífsdjöfullinn út,“ segir hann.
„Hún er líka með mikið keppnisskap og vill alltaf gera meira og betur. Það er frábært að díla við hana, hún er alltaf tilbúin í hvað sem er og gaman að vera í kringum hana. Hún er reyndar mjög gáfuð, hún veit alveg hvað hún þarf að gera til að fá fólk til að tala.“