fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fókus

„Eftir þetta hræðilega banaslys náfrænda míns og vinar var sjokkið það mikið að ég vissi að ég yrði að breyta lífi mínu“

Fókus
Föstudaginn 31. janúar 2025 09:54

Arnór Sveinsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnór Sveinsson jógakennari segist sjá það í störfum sínum að streita, neysla og hraði sé að eyðileggja andlega og líkamlega heilsu stórs hóps af Íslendingum. Arnór, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, gjörbreytti lífi sínu eftir hræðilegt banaslys náins ættingja og hjálpar nú fólki að ná jafnvægi og heilsu.

„Við erum orðin mjög aftengd náttúrunni og því sem líkamskerfið okkar er hannað fyrir. Neyslan og aftengingin og það hvað við höfum mikinn aðgang að öllu án þess að hafa fyrir því er að eyðileggja heilsuna okkar. Streitan og hraðinn í samfélaginu okkar eru orðin gríðarlega mikið og stór hluti fólks er í raun fastur í svokölluðu „fight or flight“ ástandi sem kemur niður á öllum lífsgæðum. Svo endar það bara í „freeze“ þar sem fólk er komið í kulnun og í raun orðið alveg aftengt. Þá ertu í algjöru doðaástandi, en getur jafnvel haldið áfram að fúnkera í talsverðan tíma. En ég hef séð það í störfum mínum með fólk að það er hægt að bæta ástandið mjög hratt ef fólk leggur sig fram um að gera réttu hlutina,“ segir Arnór, sem segir verkfærin til að koma sér í stand vera mörg.

„Bara að byrja að huga að öndun, draga úr áreitum frá skjáum, komast út í náttúru, fara í kulda og hita er allt eitthvað sem hjálpar okkur að komast aftur inn í líkamann og úr streitu. Við erum flest gríðarlega föst í vönum okkar og þess vegna er svo mikilvægt að byrja daginn á að tengja sig með einhverjum hætti, svo að maður sé ekki bara eins og lauf í vindi að bregðast við einhverju allan daginn. Þegar fólk gefur heilanum aldrei tækifæri til að vinna úr hlutum með því að dvelja í þögn eða stoppa áreitin í gegnum skjái getur það ekki endað vel. Þegar fólk byrjar að ástunda hugleiðslu og öndun gerast oft magnaðir hlutir. Það þarf þolinmæði, en hægt og rólega kemst maður að því hvaða vana maður vill ekki hafa og byrjar að veita því athygli sem maður vill vera. Því oftar sem þú getur tengt þig yfir daginn, því meira ertu á staðnum og því líklegra er að þú náir að aftengja þig þessu stöðuga streituástandi sem við erum flest orðin háð,“ segir Arnór.

Missti frænda sinn

Arnór gjörbreytti lífi sínu eftir skyndilegt banaslys frænda síns og náins vinar sem var með honum til sjós. Arnór hafði verið á sjó síðan hann mundi eftir sér, en eftir slysið fór hann á flakk um heiminn til að læra hugleiðslu, öndun- og kuldaþjálfun.

„Lífsstíllinn minn í landi á milli túra var ekki sérstaklega góður. Maður var í algjöru fríi þegar maður var ekki úti á sjó og þá djammaði ég talsvert og reykti mikið gras, sem var orðinn minn flótti frá því að mæta sjálfum mér,“ segir Arnór, sem skipti sem fyrr segir svo algjörlega um takt.

„Eftir þetta hræðilega banaslys náfrænda míns og vinar var sjokkið það mikið að ég vissi að ég yrði að breyta lífi mínu. Hann var eldri en ég og ég leit mikið upp til hans, þannig að þetta var mikið högg. Eftir þetta áttaði ég mig á því að það væri meira í lífinu en að vera bara á sjónum og djamma og reykja gras þess á milli. Ég flaug til Taílands út í óvissuna og þar upphófst atburðarás, þar sem örlögin tóku í taumana og ég var eiginlega leiddur áfram. Ég endaði í litlum bæ í norðurhluta landsins, þar sem ég kynntist munki sem ég var svo lánsamur að fá að verja dýrmætum tíma með. Þar fór ég í djúpa innri vinnu, lærði hugleiðslu og fékk grunninn að því sem er nálgun mín í því sem ég er að gera í dag. Þessi munkur var minn fyrsti kennari og ég lærði gríðarlega mikið af honum. Hægt og rólega fór ég að átta mig á öllum hlutunum sem ég þarf ekki á að halda í lífinu og allt fór að verða einfaldara. Síðan þá hef ég ferðast víðs vegar um heiminn og sótt fjöldann allan af námskeiðum sem tengjast jóga, hugleiðslu og andlegri vinnu.“

Lærði hjá ísmanninum

Arnór hefur síðustu 10 ár kennt jóga og öndun og haldið fjölmörg námskeið. Hann lærði líka kuldaþjálfun hjá ísmanninum Wim Hof, sem hann segir hafa verið stórmerkilega reynslu.

„Ég fór 2017 að læra kuldaþjálfun í Póllandi. Ég vildi læra eitthvað sem væri meiri brú inn í andlega heiminn fyrir karlmenn. Þegar þú ert kominn með snargeggjaðan Hollending sem á alls konar heimsmet að hoppa ofan í kalt vatn er líklegra að þú náir eyrum karlmanna en bara með jóga og hugleiðslu. Þetta var frábær hópur og það myndaðist mikið bræðralag.“

Arnór hefur undanfarið lagt sérstaklega mikla áherslu á að vinna með taugakerfið, enda sér hann í störfum sínum að stór hluti samfélagsins sé kominn yfir strikið í streitu og þurfi nauðsynlega að ná sér til baka. Í þættinum með Sölva fer hann yfir leiðir til að ná heilsunni til baka, finna jafnvægi og margt fleira.

 

Hægt er að nálgast viðtalið við Arnór og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Stebbi JAK ætlar alla leið: „Ég er ekki að byrja í þessum bransa“

Stebbi JAK ætlar alla leið: „Ég er ekki að byrja í þessum bransa“
Fókus
Í gær

Anna María reyndi að vara við geranda litlu frænku sinnar – „En enginn hlustaði“ og þolendur urðu fleiri

Anna María reyndi að vara við geranda litlu frænku sinnar – „En enginn hlustaði“ og þolendur urðu fleiri
Fókus
Í gær

„Mín versta hugsun var að deyja frá drengjunum mínum“

„Mín versta hugsun var að deyja frá drengjunum mínum“
Fókus
Í gær

Tanja Ýr sár yfir vinnubrögðum Mbl.is – „Finnst þetta eiginlega óskiljanlegt og vona innilega að mín bíði afsökunarbeiðni“

Tanja Ýr sár yfir vinnubrögðum Mbl.is – „Finnst þetta eiginlega óskiljanlegt og vona innilega að mín bíði afsökunarbeiðni“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland 2025

Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland 2025
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fræðsluskot Óla tölvu: Deepseek skrifar á íslensku

Fræðsluskot Óla tölvu: Deepseek skrifar á íslensku
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hart tekist á um hækkandi verð á bragðaref í Ísbúð Vesturbæjar – „Okrið endalausa“

Hart tekist á um hækkandi verð á bragðaref í Ísbúð Vesturbæjar – „Okrið endalausa“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Var í dái í 8 daga og lýsir upplifuninni – Heyrði í ástvinum en minnti á helvíti

Var í dái í 8 daga og lýsir upplifuninni – Heyrði í ástvinum en minnti á helvíti