Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, Geirlaug Þorvaldsdóttir eigandi Hótel Holts og Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, eigandi sap arkitekta og Lendager Ísland heiðraðar.
„Á hverju ári lít ég yfir hópinn sem við heiðrum og hugsa: „Mikið væri gaman að festast á eyðieyju með þessum konum!“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA. Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu konur og veitir FKA Viðurkenningu, Hvatningarviðurkenningu FKA og Þakkarviðurkenningu FKA og það var gert í gær á Hótel Reykjavík Grand.
Framlína í atvinnulífinu fagnar með viðurkenningarhöfum, fyrrum viðurkenningarhafar njóta stundarinnar og er óhætt að segja að FKA hafi tekist með glæsibrag að telja í Kvennaár 2025 með Viðurkenningarhátíð sinni. Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA var kynnir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra steig á svið sem og Rakel Garðarsdóttir framleiðandi hjá Vesturporti sem ber einnig ábyrgð á yfirstandandi Vigdísar-æði og Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA var kynnir.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2025 sem veitt er fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið eða er konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd. Hrefna er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og er í framkvæmdastjórn Creditinfo Group.
Arnhildur Pálmadóttir hlaut FKA hvatningarviðurkenninguna 2025 sem veitt er fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri. Arnhildur er arkitekt, eigandi sap arkitekta og Lendager Ísland.
Geirlaug Þorvaldsdóttir hlaut FKA þakkarviðurkenninguna 2025 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu. Geirlaug er eigandi Hótel Holts.
Félagið þakklátt fyrir þær fjölmörgu tilnefningar sem berast
Að hausti auglýsir FKA eftir tilnefningum sem í kjölfarið berast víða að og í dómnefnd í ár voru í stafrófsröð:
Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir eigandi Synia og hugbúnaðarfyrirtækisins GET Ráðgjöf var formaður dómnefndar 2025.
Ásgeir Ingi Valtýsson markaðsséní og einn stofnanda Popp Up.
Edythe Mangindin ljósmóðir og doktorsnemi, Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Hildur Petersen athafnakona, sat í fyrstu stjórn FKA og er Þakkarviðurkenningarhafi FKA 2018.
Jón Björnsson forstjóri Veritas og stjórnarmaður Boozt og Dropp.
Kristján Kristjánsson fjölmiðlamaður og ráðgjafi, stýrir m.a. Sprengisandi á Bylgjunni.
Rósa Kristinsdóttir sérfræðingur hjá VEX framtakssjóði, meðstofnandi Fortuna Invest.
Varði unglingsárunum í málingadeild, pípulagningadeild og á skrúfubarnum í BYKO.
„Hrefna Ösp vann frá 13 ára aldri á sumrin hjá afa sínum og ömmu í BYKO en þau stofnuðu BYKO og voru hennar fyrirmyndir. Á hátíðinni er saga viðurkenningarhafa gjarnan rifjuð upp, öllum í salnum til yndisauka og gaman er að heyra sögur af viðurkenningarhöfum í leik og starfi og að starfsþróun og stjórnendastíll viðkomandi hefjist víða, eins og á skrúfubarnum í BYKO,“ segir Andrea glöð í bragði eftir stórglæsilega og gleðilega Viðurkenningarhátíð.
Andrea minnir á Kvennaárið 2025 sem gengið er í garð. „Mörg félög og kvennasamtök kvenna eiga stórafmæli á árinu 2025 og á árinu munum við minnast mikilvægra atburða sem tengjast kvennabaráttunni. Fimmtíu ár eru liðin í ár frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið á hinum sögulega Kvennafrídegi svo dæmi sé tekið. Nýtum einstakt tækifæri til að rifja upp, þakka fyrir og kynna allt það góða starf sem konur í atvinnulífinu eru að inna af hendi í dag. Sérstakar þakkir vil ég svo færa Coca-Cola á Íslandi sem er styrktaraðili FKA á Kvennaári 2025.
Hjartans hamingjuóskir Hrefna, Geirlaug og Arnhildur!“
Upptöku af hátíðinni má finna hér.