fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fókus

Stebbi JAK ætlar alla leið: „Ég er ekki að byrja í þessum bransa“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 12:31

Stefán Jakobsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er gestur vikunnar í Fókus. Það er margt spennandi á döfinni hjá Stefáni, sem margir þekkja sem Stebba Jak, en hann mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins þann 8. febrúar næstkomandi.

Í þættinum fer Stefán um víðan völl. Hann ræðir um Söngvakeppnina, ævintýrið sem því fylgir, lífið og ástina, en hann opnar sig einnig um alvarlega líkamsárás sem hann varð fyrir árið 2000. Hann þurfti að fara í tvær aðgerðir í kjölfarið en verst voru andlegu áhrifin sem árásin hafði. Hann burðaðist með þetta í rúm tuttugu ár en segir frá því þegar hann fór á fund með einum árásarmanninum í fyrra.

Horfðu á þáttinn hér að neðan eða hlustaðu á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

video
play-sharp-fill

Hver er Stefán?

Stefán er að norðan og uppalinn í Mývatnssveit, þar sem hann er búsettur í dag (þó með annan fótinn í höfuðborginni með eiginkonu sinni, Kristínu Sif Björgvinsdóttur).

„Ég fæðist í miðri eldgosahrinu árið 1980. Það gýs í Mývatnssveit frá 1975 til 1984, ég fæðist þarna inni í miðjum glundroða. Ég var rosalega lítill í mér og feiminn framan af sem ég ber kannski með mér í dag, ég byrjaði seint að tala og hef svo ekki stoppað síðan,“ segir hann kíminn.

Stefán lýsir sér sem jarðbundnum sveitabrallara sem hefur gaman af útivist og veiði. „Ég er líka endalaust að græja eitthvað í skúrnum. Konan mín og vinir segja að ég sé á breytingarskeiðinu því ég er alltaf að breyta einhverju. Svo bara er ég tónlistarmaður, listamaður, skemmtikraftur, veislustjóri og ég geri það sem mér dettur í hug og ég blessunarlega get það. Ég reyni að hafa gaman af því sem ég er að gera þá stundina.“

Söngvakeppni sjónvarpsins 2025.

Tók þátt með Dimmu

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Stefán tekur þátt í Söngvakeppninni en hann tók þátt með hljómsveitinni Dimmu árið 2020. Dimma lenti í öðru sæti með lagið „Almyrkvi“ á eftir Daða og Gagnamagninu með lagið „Think About Things.“l

Stefán segir að það sé mikill munur á því að taka þátt sem meðlimur í hljómsveit eða sóló listamaður. Ábyrgðin og álagið dreifist meira því fleiri sem eru í atriðinu. Hann segir einnig umgjörðina stærri nú hjá RÚV en þá.

„Atriðið er miklu flóknara, miklu fleiri horn sem ég þarf að líta í. Ég er með dansara og sviðslistamenn og alls konar gott fólk í teyminu,“ segir hann.

„Það er aðallega það að ég er með mitt nafn undir og það er ég sem þarf að standast þessa pressu […] Ef þú stendur þig vel þá færðu kredit fyrir það og ef þú stendur þig illa færðu á baukinn.“

Stefán ætlar alla leið en fer fögrum orðum um hin atriðin. „Ég hef trú á því að allir séu að fara að standa sig vel. Flott atriði, flottir keppendur og skemmtilegt.“

Frelsi

Við spurðum Stefán hvað „Frelsið mitt“ merkir fyrir honum.

„Frelsi er það mikilvægasta sem við höfum og það er bara mjög gott að staldra aðeins við og hugsa hvað það þýðir. Hvað þýðir það fyrir mig, hvað þýðir það fyrir aðra? Það er ábyrgð að vera með frelsi og virða frelsi annarra, það er ábyrgð að passa upp á sitt eigið frelsi, og aftur heimsins. Þetta er kannski það eina sem ég vil vekja athygli á, menn þurfa aðeins að pæla í þessu, hvað þetta þýðir,“ segir hann.

Aðspurður hvort hann sé búinn að ákveða, ef hann vinnur keppnina, hvort hann myndi flytja lagið á íslensku eða ensku svarar Stefán neitandi. Hann útilokar ekki að setja það í hendur almennings ef þangað kemur.

Stór fjölskylda

Stefán og Kristín eiga á milli sín fimm börn á táningsaldri. Það hefur gengið vonum framar að blanda saman fjölskyldum en hjónin gengu í það heilaga í september 2023 og hefur ekki verið lognmolla síðan.

„Við giftum okkur og svo fjögur ár í kjölfarið eru fermingar, fermdum í fyrra, fermum í ár og næstu tvö ár. Það eru útskriftir, það verða bílpróf, útskriftir úr háskóla og væntanlega klessist beint í þetta barnabörn, ég sé engan breather í náinni framtíð sem er fínt,“ segir hann.

En hvað segja börnin við þessu ævintýri?

„Þetta var náttúrulega eitthvað sem maður þurfti að hugsa um þegar þetta kom inn á borð, hvort að maður ætti að gera þetta eða ekki, er þetta þess virði. Því þessi keppni er bæði með gott orð á sér og ekki og maður þarf að pæla í þessu,“ segir hann.

„Ég talaði náttúrulega við mína konu, börnin, foreldra mína og systur og fleiri til um þetta mál. Börnin áttu eiginlega úrslitaatkvæðið, þau sjá bara skemmtilegt og ekkert nema ævintýri fram undan.“

Stefán og Kristín. Mynd/Instagram

Stefán segir þetta þó ekki breyta því að hann sé líka hallærislegur í augum barnanna, það sé bara fylgifiskur þess að vera pabbi unglinga. „Það er alveg sama hvað maður gerir, unglingsbörnunum þínum geta ekki fundist þú vera kúl. Við megum ekki tala sama tungumál og þau, það er hallærislegt, þá að sjálfsögðu geri ég meira af því fyrir vikið,“ segir hann kíminn.

Börnin verða í salnum í febrúar til að styðja pabba sinn. „Það var mjög gaman að hafa þau síðast. Það er til mjög flott mynd af stelpunum mínum tveimur þar sem þær eru hágrátandi og hlæjandi í einu þegar Dimma komst í úrslit, mynd sem ég held mikið upp á og ég væri til að fá eitthvað svipað móment núna.“

„Ég er ekki að byrja í þessum bransa“

Stefán er ákveðinn að fara alla leið. „Ég ætla að komast upp úr mínum riðli og mig langar alveg rosalega að fara alla leið. Fyrir utan það að lagið er gott, kraftmikið og flott lag, þetta er góður boðskapur. Ég er ekki að byrja í þessum bransa, ég er búinn að vera í þessum bransa mjög lengi. Ég veit út á hvað allt gengur, það er ekkert sem kemur á óvart. Það er ekkert fyrir alla að fara úr því að vera á litlu sviði og fara svo að syngja fyrir framan 300 milljónir. Ég þekki náttúrulega ekki alla hina sem eru í keppninni persónulega hvað þetta varðar en ég veit allavega að ég er hundrað prósent til í þetta,“ segir hann.

Horfðu á þáttinn hér að ofan eða hlustaðu á Spotify.

Fylgstu með Stefáni á Instagram, Facebook og TikTok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sara vill frekar sjá fólk undir áhrifum MDMA í miðbænum en áfengis – „Þá væru ekki hnífsstungur eða líkamsárásir“

Sara vill frekar sjá fólk undir áhrifum MDMA í miðbænum en áfengis – „Þá væru ekki hnífsstungur eða líkamsárásir“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eru dularfullu flygildin í raun leynivopn hulduaflanna?

Eru dularfullu flygildin í raun leynivopn hulduaflanna?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bill Gates: „Þetta eru mistökin sem ég sé mest eftir“

Bill Gates: „Þetta eru mistökin sem ég sé mest eftir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Beggi Ólafs fagnaði stórum áfanga – „Það er erfitt trúa þessu“

Beggi Ólafs fagnaði stórum áfanga – „Það er erfitt trúa þessu“
Hide picture