„Stærsta áskorunin fyrir karlmenn í dag er að finna þessa fínu línu á milli viðkvæmni og karlmennsku,“ sagði hún við The Sun.
Hún sagði að það borgaði sig að finna karlmann sem er vel tengdur tilfinningum sínum.
„Ég held að hugmyndin um karlmennsku sé að breytast,“ sagði stefnumótasérfræðingurinn Adam Cohen-Aslatei við The Post.
„Karlmennska snýst ekki um að vera harður gaur heldur að vera heiðarlegur, sýna öðrum virðingu, kurteisi, vilja vernda aðra og sýna tilfinningar þínar.“
Samkvæmt gögnum frá stefnumótaforritinu Bumble höfðu um 30 prósent karlkyns notenda breytt hegðun sinni til að vera opnari og sýna tilfinningar sínar betur gagnvart fólkinu sem þeir voru að hitta.