Anna María opnar sig um málið í pistli á Vísi og vísar í tálbeituhópinn sem DV hefur fjallað um undanfarið.
Sjá einnig: Piltur úr tálbeituhópnum ræðir við DV: Segir þingmenn og aðra broddborgara klæmast við börn á netinu
„Þegar kerfið bregst, neyðast þolendur til að bíða en gerendur ganga lausir. Það getur ekki talist réttlæti. Nýlega hafa einstaklingar tekið sig saman til að afhjúpa meinta barnaníðinga á samfélagsmiðlum, meðal annars í svokölluðum tálbeituhópum. Þessi þróun er hættuleg og afhjúpar alvarlegar brotalamir í réttarkerfinu. Þegar lögreglan og dómskerfið sinna ekki skyldu sinni að vernda brotaþola, verður reiði almennings skiljanleg en einnig vísbending um djúpstæðan vanda,“ segir Anna María.
Hún segir að það sé skiljanlegt að samfélagið bregðist við með þessum hætti þegar yfirvöld „gera lítið eða ekkert, en það er óásættanlegt að brotaþolar og aðstandendur þeirra upplifi að eina leiðin til réttlætis sé að grípa sjálfir til aðgerða.“
„Þetta sýnir hvernig réttarkerfið hefur ítrekað brugðist brotaþolum með vanrækslu og skorti á viðbrögðum,“ segir hún.
Anna María segir að dómsmál frá 2012 sýni skýrt hvernig kerfið bregst.
„Árið 2003 tilkynnti frænka barns um kynferðisofbeldi sem það hafði trúað henni fyrir. Lögreglan gerði ekkert í málinu. Árið 2010 kærði annar brotaþoli sama mann. Þá fyrst hafði lögreglan samband við frænkuna og kom þá í ljós að skýrsla hennar hafði legið gleymd í skúffu í sjö ár,“ segir hún.
„Frænkan, sem ekki var tekin trúanleg árið 2003, var nú kölluð til sem vitni í máli drengs sem hún ekki þekkti. Á meðan hafði gerandinn gengið laus og framið fleiri brot. Hefði lögreglan hlustað á frænkuna árið 2003, hefði verið hægt að koma í veg fyrir sjö ár af áframhaldandi misnotkun.
Af hverju þurfti annar brotaþoli að kæra til að málið yrði tekið alvarlega? Hversu oft hefur slíkt gerst áður? Hversu mörg brot mætti koma í veg fyrir ef yfirvöld tækju allar frásagnir alvarlega strax?“
Anna María er frænkan sem tilkynnti árið 2003. „En enginn hlustaði,“ segir hún.
„Ríkisvaldið getur ekki lengur vikist undan ábyrgð. Það þarf tafarlausar umbætur í meðferð kynferðisbrotamála – áður en fleiri brotaþolar neyðast til að þegja eða almenningur til að grípa til sinna ráða. Við þurfum breytingar strax. Við getum ekki horft aðgerðalaus á meðan fleiri börn falla í sömu gildru.“