Aron Mímir Gylfason, greindist með sjaldgæfan sjúkdóm í desember, eftir að hafa upplifað sig í annarlegu ástandi og verið handtekinn af lögreglu.
Aron er annar helmingur vinsæla hlaðvarpsins Götustrákar og í nýjasta þætti segir hann frá því að hafa byrjað að upplifa sig í annarlegu ástandi þegar hann var að keyra heim af næturvakt.
„Ég var einn að keyra þegar ég næ ekki að keyra lengur og þurfti að stoppa á umferðareyju. Maður sem ég þekki hoppar inn í bílinn og keyrir mig heim. Hann hélt að ég væri ölvaður,“ segir Aron sem segir manninn hafa hringt til að láta vita um ástandið sem hann taldi Aron í.
„Hann náði að hringja í konuna mína og hún að segja honum hvar við eigum heima. Ég kem heim og er eitthvað steiktur, og konan mín segir að ég hafi bara hlaupið upp á fjórðu hæð.“
Aron þekkti ekki konuna sína þegar hann kom heim, en hún var þá gengin átta mánuði á leið með fyrsta barn þeirra.
Bjarki Valur Viðarson félagi hans í Götustrákum segist hafa fengið símtal um að Aron væri dottinn í það. Aron fagnaði þriggja ára edrúafmæli í desember og sagði Bjarki í símtalinu að það væri ekki möguleiki á að Aron væri fallinn.
„Ég frétti að þú hefðir verið að reyna að opna hurðina heima hjá þér með airpods,“ segir Bjarki.
Aron fór í óráð/geðrof þegar hann kom heim og var sjúkrabíll og lögregla kölluð til. Rifjar Aron upp að hann hafi gripið í sjúkraflutningamennina og öskrað á þá að hjálpa sér. „Ég upplifi að ég sé enn fastur í bílnum.“
Fjóra lögreglumenn þurfti til að halda Aroni sem var handjárnaður fyrir aftan bak heima hjá mér. Bjarki sem var mættur á staðinn segir Aron hafa öskrað stanslaust á hjálp allan tímann. Var hann spurður hvort Aron væri oft árásargjarn og svaraði hann því til að hann hefði ekki heyrt hann hækka röddina síðan þeir kynntust og Aron rólegasti maður sem hann þekkti.
Aron var sprautaður niður af sjúkraflutningamönnum og fluttur á Landspítalann.
Bjarki segist hafa haft miklar áhyggjur af vini sínum. „Ég fór bara að hágrenja, það var ekkert vitað hvernig þú vaknar, hvort þú sért sami gaur eða hvort það sé eitthvað verra í gangi. Það voru allir ógeðslega hræddir. Þú ert svo mikið gerpi að gera okkur þetta.“
Aron viðurkennir að hafa oft brostið í grát þegar hann lá inni á Landspítalanum og hann hafi verið hræddur í þessum aðstæðum. „Ég fór alveg nokkrum sinnum að gráta á spítalanum. Þetta var ógeðslega skeirí. Maður er nýorðinn þrítugur fyrir nokkrum mánuðum og með eitthvað heilavesen. Ég vissi ekkert með framhaldið.“
Aron var að lokum greindur með sjaldgæfan sjúkdóm, HANDL syndrome, og var honum sagt af læknum að það greinast að jafnaði 1-3 einstaklingar hérlendis á ári með sjúkdóminn.
Horfa má á þáttinn í heild sinni á Pardus.
Fjallað var um Handl í Læknablaðinu í byrjun árs 2021. Þar segir:
HaNDL (headache with neurological deficits and cerebrospinal fluid lymphocytosis) eða heilkenni skammvinns höfuðverkjar með brottfallseinkennum og eitilfrumuhækkun í mænuvökva er sjaldgæft sjúkdómsástand. Eins og nafnið gefur til kynna einkennist HaNDL af höfuðverkjaköstum og brottfallseinkennum frá taugakerfi auk eitilfrumnahækkunar í mænuvökva. Heilkennið er góðkynja og einkenni ganga til baka en mikilvægt er að útiloka alvarlegar orsakir fyrir einkennum sjúklinga.
Handl er algengast á aldursbilinu 30-40 ára en tilfelli eru þekkt frá 7-52 ára. Heilkennið einkennist af einu eða fleiri köstum með mígrenilíkum höfuðverk og brottfallseinkennum frá taugakerfi samfara hækkun á eitilfrumum í mænuvökva.
Aron var í viðtali við Fókus á DV í nóvember 2024: Aron um áfallið sem breytti lífi hans – „Það er svo vont að vera þessi gaur sem er að burðast með allan heiminn