Alexandra er gift knattspyrnumanninum Gylfa Þór Sigurðssyni og eiga þau saman tvö börn.
„Þetta er svo skrýtið, þegar maður verður tilbúinn [í barneignir] þá er hausinn kominn svo langt, maður er svo spenntur. En svo gerist það ekki, en maður ætlar að gefa þessu ár en hvað sem er mælt með, svo mánuð eftir mánuð gerist ekki neitt…“
Alexandra segir að á þeim tíma hafi hún byrjað að hafa áhyggjur af því að það væri kannski ekki allt í góðu. „Það var eitthvað gut feeling hjá mér að það vær eiitthvað sem þyrfti að athuga. Þarna vorum við mjög ung, rúmlega 25 ára.“
Þau ákváðu að fara og láta athuga málið. „Þá kom í ljós, samkvæmt þessu, að við þyrftum hjálp. Og þetta ferli stóð alveg í mörg ár án árangurs, sem er náttúrulega ótrúlega þungt að bera. Sérstaklega ef maður talar ekki um það, því á þeim tíma var ég ekki alveg tilbúin að ræða það. Ég veit ekki hvað olli því, ég held að þetta sé ótrúlega persónubundið hvort að fólk treystir sér yfir höfuð að tala um þetta strax, eða eftir á. Ég dáist að konum sem sýna frá ferlinu og deila þessu, því þetta er þungt persónulega og maður getur verið mjög langt niðri í svona ferli. Bæði ertu með einhverja von sem er alltaf verið að kremja þegar þetta gengur ekki upp og maður er alltaf kominn lengra í hausnum. Svo allt þetta hormónarúss sem fylgir þessu, öll lyfin og allt þetta dót.“
Alexandra sagði engum frá hvað hún væri að ganga í gegnum nema fjölskyldu og sínum nánustu en hún var farin að vilja segja fleirum frá undir lokin. „Þetta var svo stór partur af mér og ef bestu vinkonur mínar og fólk sem er náið mér veit þetta ekki, þá þekkir það mig ekki. Þetta var minn veruleiki í svo langan tíma og mér leið oft ótrúlega illa og það var farið að vera erfitt að vera í þessu „leikriti.““
Hún segir að það hafi verið mikill léttir að tala loksins opinskátt um þetta. „Maður er líka á þeim aldri og búin að vera lengi saman að fólk var með alls konar athugasemdir sem ristu svo djúpt þegar þú ert í þessu ferli. Fólk meinar ekkert með því og ég geri mér grein fyrir því að það ætlar enginn að vera leiðinlegur, en fólk áttar sig oft ekki á því.“
Alexandra ræðir þetta nánar í spilaranum hér að neðan.