fbpx
Laugardagur 18.janúar 2025
Fókus

Þorsteinn um reiða manninn í ræktinni: „Þá bara öskrar hann, við erum að tala um í anddyrinu í World Class Laugum klukkan þrjú“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 14. janúar 2025 10:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur, rifjar upp þegar karlmaður lét hann heyra það í anddyrinu í World Class í Laugum og það leit út fyrir að maðurinn ætlaði að ráðast á hann.

Þorsteinn greindi frá þessu í hlaðvarpinu Hjónvarpið, sem hann heldur úti ásamt eiginkonu sinni, sálfræðingnum Huldu Tölgyes.

Þetta byrjaði allt nokkrum vikum áður, á sama stað, í World Class í Laugum.

Þorsteinn lýsir því hvernig hann sá manninn og fannst hann kannast við hann.

„Ég bara nikka og segi: „Nei, hæ.“ Ég fattaði svo að ég þekki  þennan mann ekki neitt,“ segir hann og bætir við að maðurinn hafði starað á hann illum augum og sett í brýnnar.

„Bara hann er brjálaður, gjörsamlega. Og það gerist ekkert þegar ég brosi til hans,“ segir Þorsteinn.

„Mér verður svo um þegar hann er svona reiður í framan ennþá og ég er eitthvað glaður að ég hlæ óvart. Allavega, svo er það bara búið.“

„Ég stend algjörlega grafkyrr með hendur upp og ég bara er svo hissa“

Nokkrum vikum seinna er Þorsteinn aftur í ræktina og rekst aftur á manninn. „Ég er að drífa mig þarna í burtu, stend upp, hendi glasinu og segi: „Ég nenni ekkert að ræða þetta,“ og er kominn eiginlega út. Það voru svona þrír, fjórir metrar á milli okkar,“ segir hann.

„Þá bara öskrar hann, við erum að tala um í anddyrinu í World Class Laugum klukkan þrjú, það var fullt af fólki þarna. Bara: „Stundum fær fólk bara nóg! Hvenær ætlarðu eiginlega að fara að hætta þessu?!“ Og labbar í áttina að mér eins og hann sé að fara að skalla mig eða kýla mig. Ég stend algjörlega grafkyrr með hendur upp og ég bara er svo hissa.“

Þorsteinn segir svona hegðun segja ýmislegt um fólk. „Sko, þetta fær mig ekki til að hugsa: Já þessi maður, hann hefur aldrei beitt ofbeldi. Það fær mig frekar til að hugsa: Sjit, þessi maður er líklegur til að beita ofbeldi.“

Þorsteinn segir frá þessu í spilaranum hér að neðan en brotið er hluti af nýjasta þætti af Hjónvarpið. Það er hægt að kaupa áskrift á thridja.is eða Patreon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Birti óhugnanlegt myndband um „frábæra“ fyrrverandi eiginmanninn sem myrti hana stuttu síðar

Birti óhugnanlegt myndband um „frábæra“ fyrrverandi eiginmanninn sem myrti hana stuttu síðar
Fókus
Í gær

Aron var handtekinn af fjórum lögreglumönnum, sprautaður niður og fluttur á Landspítalann – Greindur með sjaldgæfan sjúkdóm í kjölfarið

Aron var handtekinn af fjórum lögreglumönnum, sprautaður niður og fluttur á Landspítalann – Greindur með sjaldgæfan sjúkdóm í kjölfarið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Drew Barrymore hefndi sín á fyrrverandi með kostulegum hætti – „Haltu kjafti og hlustaðu“

Drew Barrymore hefndi sín á fyrrverandi með kostulegum hætti – „Haltu kjafti og hlustaðu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leynilögreglumaður myndaði sterk tengsl við undirheimana: „Ég get ekki sagt þér hversu oft ég hélt að ég væri að fara deyja“

Leynilögreglumaður myndaði sterk tengsl við undirheimana: „Ég get ekki sagt þér hversu oft ég hélt að ég væri að fara deyja“