fbpx
Laugardagur 19.apríl 2025
Fókus

Segir frá risafjárhæð sem Elon Musk bauð henni fyrir að þegja um fæðingu barns þeirra

Fókus
Miðvikudaginn 16. apríl 2025 14:30

Ashley St. Clair eignaðist nýlega barn með auðkýfingnum Elon Musk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn Ashley St. Clair, 26 ára, eignaðist nýlega barn með auðkýfingnum Elon Musk. Musk virðist vera mjög áhugasamur um að fjölga mannkyninu enda er þetta hans þrettánda barn. Hann gæti þó vel átt fleiri því St. Clair hefur nú opinberað sig um að Musk hafi reynt allt til þess að fá hana til að þegja um faðernið. Hefur hún nú greint frá því að Musk hafi boðið henni allt að 15 milljónum dollara og greiðslur upp á 100 þúsund dollara á mánuði til þess sem og að ræða hann aðeins með jákvæðum hætti opinberlega. Var tilboðið í takt við önnur sem barnsmæður Musk hafa þegið, eins og til að mynda tónlistarkonan Grimes og Neuralink-stjórnandinn Shivon Zilis.

Sonurinn, sem fékk nafnið Romulus, fæddist í febrúar 2025 . Þrátt fyrir niðurstöðu faðernisprófs sem segir Musk „99.9999%“ líklegan til að vera faðirinn, hefur hann sjálfur ekki viðurkennt barnið opinberlega.

Í viðtali við DailyMail greindi St. Clair frá fjárhagsörðugleikum sínum í kjölfar barnsfæðingarinnar og deilunnar við Musk. Hún neyddist meðal annars til að selja Tesluna sína til að standa undir framfærslu. Hún segir Musk hafa skorið niður barnastuðninginn um 60% eftir að hún fór með málið fyrir dómstóla í New York.

Þau kynntust í gegnum samfélagsmiðla vorið 2023 og eftir að Musk bauð henni í höfuðstöðvar X (áður Twitter) fór hún með honum í einkaþotuferð til Rhode Island. Þau hófu samband og samkvæmt St. Clair varð barnið til á ferðalagi til Karíbahafsins í janúar 2024.

Musk hefur síðan aðeins hitt son sinn þrisvar sinnum í stuttum heimsóknum. Dómsskjöl sem DailyMail fékk í hendur áður en málið var innsiglað sýna að hann hafi hvorki haft samskipti né sýnt frumkvæði varðandi son sinn.

Musk hefur svarað ásökunum St. Clair með duldum vísbendingum á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann neitar hvorki né staðfestir faðerni – en segist hafa greitt henni samtals 2,5 milljónir dollara og greiði nú 500 þúsund dollara á ári.

St. Clair hefur hins vegar sakað hann um að reyna að stjórna henni með fjárhagslegum þvingunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ólafur var milli lífs og dauða – Kom heim til að deyja en fann sig í að aðstoða aðra – „Stundum hafa komið dalir“

Ólafur var milli lífs og dauða – Kom heim til að deyja en fann sig í að aðstoða aðra – „Stundum hafa komið dalir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Linda Pé öfundar ekki aðrar konur – „Ég hef oft upplifað þetta gagnvart mér“

Linda Pé öfundar ekki aðrar konur – „Ég hef oft upplifað þetta gagnvart mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Valli notaði stjórnsemi til að reyna að laga son sinn – „Endalaus óbein skilaboð um að ég elskaði hann ekki og að hann væri ekki nógu góður“

Valli notaði stjórnsemi til að reyna að laga son sinn – „Endalaus óbein skilaboð um að ég elskaði hann ekki og að hann væri ekki nógu góður“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Háklassa vændiskona um dökku hliðar bransans – „Myndi aldrei mæla með starfinu“

Háklassa vændiskona um dökku hliðar bransans – „Myndi aldrei mæla með starfinu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Villtar játningar, dónalegir draumar og fullnægjandi fantasíur í játningarklefanum

Villtar játningar, dónalegir draumar og fullnægjandi fantasíur í játningarklefanum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Karen segir enga hljómsveit hafa gert íslenskunni jafn mikið gagn – „Þetta er þjóðarauður“

Karen segir enga hljómsveit hafa gert íslenskunni jafn mikið gagn – „Þetta er þjóðarauður“