Kanye West vildi ekki eignast börn með Kim Kardashian svo snemma í sambandi þeirra.
Í furðulegu viðtali við DJ Akademiks segist hann ekki hafa séð fyrir sér að verða faðir.
Akademiks segir: „Þegar þú talar um Kim gæti fólk verið eins og: „Jæja, þú valdir hana. Þú settir þig í þessar aðstæður.“
West, sem klæddist svörtum Ku Klux Klan búningi, ásamt hinni alræmdu hettu hópsins, svarar að bragði: „Algerlega, ég gerði það. Þetta var mér að kenna. Nei, þetta var mér að kenna. Ég vildi ekki eignast börn með þessari manneskju eftir fyrstu tvo mánuðina sem ég var með henni, en Guð var með aðrar áætlanir.“
West og Kardashian eiga fjögur börn: dæturnar North, 11 ára, og Chicago, sjö ára, og synina Saint, níu ára, og Psalm, fimm ára. Elsta barnið er fætt um 14 mánuðum eftir að parið hóf samband sitt í apríl árið 2012.
Nýlega áttu hjónin fyrrverandi í deilum vegna North, eftir að hún tók þátt í einu laga föður síns, ásamt rapparanum Sean „Diddy“ Combs, sem sætir ákæru um mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Kardashian reyndi að fá dómara til að koma í veg fyrir að lagið yrði gefið út þar sem hún vildi ekki að dóttir hennar yrði tengd nafni Combs.
„Forgangsverkefni Kim er velferð og öryggi barna hennar og að vernda þau frá umdeildri hegðun Kanye,“ hefur PageSix eftir heimildamanni.
Þrátt fyrir áhyggjur Kardashian, gaf West lagið út á samfélagsmiðlum og krafðist þess að hún breytti vörumerkinu sínu með nafni North til að hafa hans nafn með. Hann sakaði einnig barnsmóður sína og „Kardashian mafíuna“ um að takmarka uppeldi sitt og líkti núverandi forræðissamningi þeirra við „heimsókn“ í „fangelsi“.
Kardashian batt einnig enda á North til föður síns eftir að Kardashian komst að því að Andrew Tate og bróðir hans, Tristan Tate, yrðu þar líka. Þeir eiga bæði yfir höfði sér ákæru fyrir nauðgun og mansal.
Kardashian er sögð íhuga að breyta forræðissamningi sínum við West vegna þessara mála allra.