fbpx
Þriðjudagur 25.febrúar 2025
Fókus

Tilnefningar til Eddunnar 2025

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 25. febrúar 2025 13:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilnefningar til Eddunnar, íslensku kvikmyndaverðlaunanna, 2025 hafa verið gerðar opinberar en þær voru kynntar á Facebook síðu Eddunnar í dag.

Snerting hlýtur flestar tilnefningar, 13 talsins, og Ljósbrot næstflestar, 12 talsins.

Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) frá árinu 1999. 

Á síðasta ári voru kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin aðskilin og Edduverðlaunin veitt í fyrsta sinn fyrir kvikmyndaverk eingöngu. ÍKSA sér áfram um Edduverðlaunin, þar sem eingöngu er verðlaunað fyrir kvikmyndaverk. ÍKSA á ekki aðkomu að fyrirhuguðum sjónvarpsverðlaunum, sem nýlega voru kynnt. 

Á Eddunni 2025 verða veitt samtals 20 verðlaun til kvikmyndaverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2024.

Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt, ásamt því að erlend kvikmynd ársins verður verðlaunuð sem og uppgötvun ársins en þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu. 

Alls bárust 72 verk og 129 innsendingar til fagverðlauna að þessu sinni. Met var slegið í innsendum verkum í ár en aukningin frá því í fyrra er rúm 80%. 

Heimildamyndir voru 18, heimildastuttmyndir 11, kvikmyndir í fullri lengd 9, stuttmyndir 26 og erlendar kvikmyndir 8. 

40 einstaklingar sátu í átta valnefndum fyrir hina 20 verðlaunaflokka. Meðlimir ÍKSA munu kjósa um tilnefningarnar og stendur kosning frá 1. – 17. mars. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.

Edduverðlaunin verða afhent þann 26. mars næstkomandi í beinni útsendingu á RÚV.

Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS
Geltu
Heimavist
Kirsuberjatómatar

ERLEND KVIKMYND ÁRSINS
All of us strangers
Elskling
Perfect Days
Poor things
Substance

HEIMILDAMYND ÁRSINS
Fjallið það öskrar
Kúreki Norðursins, sagan af Johnny King
The Day Iceland Stood Still

HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS
Kirsuberjatómatar
Ómur jóla
Vélsmiðja 1913

KVIKMYND ÁRSINS
Ljósbrot
Ljósvíkingar
Snerting

STUTTMYND ÁRSINS
Fár
Flökkusinfónía
O

BRELLUR ÁRSINS
Jörundur Rafn Arnarson, Christian Sjostedt
Árni Gestur Sigfússon
Michael Denis

BÚNINGAR ÁRSINS
Helga Rós Hannam
Arndís Ey
Margrét Einarsdóttir

GERVI ÁRSINS
Evalotte Oosterop
Tinna Ingimarsdóttir
Ásta Hafþórsdóttir

HANDRIT ÁRSINS
Rúnar Rúnarsson
Snævar Sölvason
Ólafur Jóhann Ólafsson og Baltasar Kormákur

HLJÓÐ ÁRSINS
Agnar Friðbertsson, Birgir Tryggvason
Björn Viktorsson
Kjartan Kjartansson

KLIPPING ÁRSINS
Andri Steinn Guðjónsson
Jussi Rautaniemi
Sigurður Eyþórsson

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS
Sophia Olsson
Kerttu Hakkarainen
Bergsteinn Björgúlfsson

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Björn Jörundur Friðbjörnsson
Egill Ólafsson
Þorsteinn Gunnarsson

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Björn Thors
Mikael Kaaber
Pálmi Kormákur

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Elín Hall
Helga Braga Jónsdóttir
Vigdís Hrefna Pálsdóttir

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Katla Njálsdóttir
Sólveig Arnarsdóttir
Yoko Narahashi

LEIKMYND ÁRSINS
Hulda Helgadóttir
Snorri Freyr Hilmarsson
Sunneva Ása

LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Rúnar Rúnarsson
Snævar Sölvason
Baltasar Kormákur

TÓNLIST ÁRSINS
Kristján Sturla Bjarnason
Magnús Jóhann
Högni Egilsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég finn það alveg í dag að um leið og ég set mig í fyrsta sæti og líður vel þá líður börnunum mínum vel“

„Ég finn það alveg í dag að um leið og ég set mig í fyrsta sæti og líður vel þá líður börnunum mínum vel“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Áströlsk dómnefnd velur sigurstranglegasta lagið annað kvöld – Mjótt á efstu tveimur en eitt lag þykir áberandi slakast

Áströlsk dómnefnd velur sigurstranglegasta lagið annað kvöld – Mjótt á efstu tveimur en eitt lag þykir áberandi slakast
Fókus
Fyrir 4 dögum

Andrew Tate fær á baukinn vegna ógeðslegra ummæla um Ariönu Grande

Andrew Tate fær á baukinn vegna ógeðslegra ummæla um Ariönu Grande
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ozempic er að eyðileggja félagslífið mitt – Og ég er ekki á lyfinu

Ozempic er að eyðileggja félagslífið mitt – Og ég er ekki á lyfinu