Það varð allt vitlaust í gær þegar fatamerkið Reformation birti myndir af grínistanum Pete Davidson berum að ofan. Hann er fyrirsæta í nýrri herferð þeirra en það sem vakti mesta athygli var ber líkami hans, það er að segja, engin húðflúr voru sjáanleg.
Pete hefur unnið markvisst að því síðustu ár að láta fjarlægja öll húðflúr af líkama sínum en hann var með ótal mörg tattú á báðum handleggjum, bringu, kvið og baki.
Myndin vakti mikla athygli og sögðu margir að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian ætti að taka við honum aftur.
„Ef ég væri Kim þá myndi ég hringja í hann strax,“ sagði einn netverji.
Stjörnurnar voru saman um níu mánaða skeið, leiðir þeirra skildu í ágúst 2022. Hann fékk sér til að mynda nokkur tattú tengd henni, sem eru nú horfin.
Netverjar höfðu einnig gaman af myndbandinu með herferðinni, horfðu á það hér að neðan.