fbpx
Miðvikudagur 12.mars 2025
Fókus

Karen Björg selur í Stuðlaborg

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 5. febrúar 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kar­en Björg Eyfjörð Þor­steins­dótt­ir, hand­rits­höf­und­ur og uppist­and­ari, hef­ur sett íbúð sína við Hall­gerðargötu á sölu. 

Karen Björg hefur getið sér gott orð sem handritshöfundur og meðal annars skrifað, með öðrum, Kennarastofuna, Venjulegt fólk þáttaraðir fimm og sex, Áramótaskaupið 2023 og Arfurinn minn.

Íbúðin er 115 fm í fjöleignarhúsi að nafni Stuðlaborg sem byggt var árið 2020. Lóðin hýsti áður starfsemi Strætó til fjölda ára. Stuðlaborg var hönnuð af hinni heimsþekktu dönsku arkitektastofu  Schmidt/Hammer/Lassen og arkitektastofunni VA arkitektar. SHL hafa hannað margar heimsþekktar byggingar víða um heim líkt og konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, „Kristallinn“ í Kaupmannahöfn og Skuggahverfið í Reykjavík.  

Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, tvo baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi.

Hjónasvítan er með opnu fataherbergi, og baðherbergi, úr hjónaherbergi er gengið út á svalir.

Eldhús er opið inn í stofu sem er björt með gólfsíðum gluggum og útsýni út á sjó. Útgengt er á tvennar svalir frá stofunni.

Gengið er inn í hitt svefnherbergið úr stofu.

Þvottahús er við anddyrið. Í sameign er sér geymsla sem er 8,9 m².

Eignin er byggð úr afar vönduðum byggingarefnum og eru allir gluggar úr áli og klæðning hússins úr lituðu áli og sementstrefjaplötum. Hljóðvist er verulega aukin í eigninni og er gengið mun lengra í þeim efnum en alla jafna tíðkast í íslenskum byggingum, meðal annars með því að hafa loftræstikerfi í öllum rýmum íbúðanna og með aukinni hljóðeinangrun utan frá og á milli rýma innan byggingarinnar.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Tinna færir kirkjuna nær fólkinu með samfélagsmiðlum

Tinna færir kirkjuna nær fólkinu með samfélagsmiðlum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég fékk að vita að fólk í þessum hópi hefur oft miklu að tapa“

„Ég fékk að vita að fólk í þessum hópi hefur oft miklu að tapa“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hreinskilin með brjóstastækkunina og sýnir útkomuna

Hreinskilin með brjóstastækkunina og sýnir útkomuna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndband: Kötturinn Diego hakkar í sig mús í Hagkaup

Myndband: Kötturinn Diego hakkar í sig mús í Hagkaup
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sjáðu fyrir og eftir myndirnar: Áhrifavaldurinn sem vildi líkjast Instagram-filter hefur látið leysa upp fylliefnin í andlitinu

Sjáðu fyrir og eftir myndirnar: Áhrifavaldurinn sem vildi líkjast Instagram-filter hefur látið leysa upp fylliefnin í andlitinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kvöldbakstur Sunnevu klúðraðist illilega – Sjáðu myndbandið

Kvöldbakstur Sunnevu klúðraðist illilega – Sjáðu myndbandið