fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fókus

Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð FKA

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 19:22

Viðurkenningarhafar 2025 ásamt stjórn og framkvæmdastjóra FKA. Mynd: Silla Páls

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, Geirlaug Þorvaldsdóttir eigandi Hótel Holts og Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, eigandi sap arkitekta og Lendager Ísland heiðraðar.  

„Á hverju ári lít ég yfir hópinn sem við heiðrum og hugsa: „Mikið væri gaman að festast á eyðieyju með þessum konum!“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA. Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu konur og veitir FKA Viðurkenningu, Hvatningarviðurkenningu FKA og Þakkarviðurkenningu FKA og það var gert í gær á Hótel Reykjavík Grand.

Framlína í atvinnulífinu fagnar með viðurkenningarhöfum, fyrrum viðurkenningarhafar njóta stundarinnar og er óhætt að segja að FKA hafi tekist með glæsibrag að telja í Kvennaár 2025 með Viðurkenningarhátíð sinni. Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA var kynnir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra steig á svið sem og  Rakel Garðarsdóttir framleiðandi hjá Vesturporti sem ber einnig ábyrgð á yfirstandandi Vigdísar-æði og Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA var kynnir.

Viðurkenningarhafar 2025 ásamt stjórn og framkvæmdastjóra FKA.
Mynd: Silla Páls

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2025 sem veitt er fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið eða er konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd. Hrefna er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og er í framkvæmdastjórn Creditinfo Group.

  • Fyrir framlag í jafnréttis- og sjálfbærnimálum en Hrefna hefur verið brautryðjandi á Íslandi í sjálfbærni og ábyrgum fjárfestingum. Hún hefur einnig verið hvatning og fyrirmynd fyrir konur í fjárfestingum, ákveðinn frumkvöðull á verðbréfamarkaði og hefur með störfum sínum haft mikil áhrif á fjármálaumhverfið á Íslandi.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2025, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og í framkvæmdastjórn Creditinfo Group.
Mynd: Silla Páls

Arnhildur Pálmadóttir hlaut FKA hvatningarviðurkenninguna 2025 sem veitt er fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri. Arnhildur er arkitekt, eigandi sap arkitekta og Lendager Ísland.

  • Arnhildur er þekkt fyrir nýstárlegar aðferðir, hugrekki og sköpunargáfu sem stuðla að aukinni sjálfbærni í rótgrónum iðnaði. Þá vinnur Arnhildur að rannsóknum á því hvort stýra megi hraunrennsli til að nota við byggingargerð og hefur lagt grunn að sjálfbærari framtíð í byggingariðnaði og verið öðrum innblástur til að fylgja í hennar fótspor. Árið 2024 hlaut Arnhildur Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.
Arnhildur Pálmadóttir hlaut FKA hvatningarviðurkenninguna 2025, arkitekt, eigandi sap arkitekta og Lendager Ísland.
Mynd: Silla Páls

Geirlaug Þorvaldsdóttir hlaut FKA þakkarviðurkenninguna 2025 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu. Geirlaug er eigandi Hótel Holts.

  • Með elju sinni og ástríðu hefur Geirlaug Þorvaldsdóttir varðveitt menningararfleifð fjölskyldu sinnar og stuðlað að framgangi íslenskrar menningar og lista. Geirlaug Þorvaldsdóttir hlaut riddarakross fyrir framlag sitt til ferðaþjónustu, menningar og varðveislu íslenskrar myndlistar í janúar 2025. Geirlaug er virk í FKA og árið 2023 tók hún þátt í stofnun Platínu-hóps sem virkjar félagskonur á þriðja æviskeiðinu og fær hópurinn þær til að deila þekkingu sinni og reynslu með yngri konum.
Geirlaug Þorvaldsdóttir hlaut FKA þakkarviðurkenninguna 2025 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu. Geirlaug er eigandi Hótel Holts.
Mynd: Silla Páls

Félagið þakklátt fyrir þær fjölmörgu tilnefningar sem berast

Að hausti auglýsir FKA eftir tilnefningum sem í kjölfarið berast víða að og í dómnefnd í ár voru í stafrófsröð:

Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir eigandi Synia og hugbúnaðarfyrirtækisins GET Ráðgjöf var formaður dómnefndar 2025.

Ásgeir Ingi Valtýsson markaðsséní og einn stofnanda Popp Up.

Edythe Mangindin ljósmóðir og doktorsnemi, Fæðingarheimili Reykjavíkur.

Hildur Petersen athafnakona, sat í fyrstu stjórn FKA og er Þakkarviðurkenningarhafi FKA 2018.

Jón Björnsson forstjóri Veritas og stjórnarmaður Boozt og Dropp.

Kristján Kristjánsson fjölmiðlamaður og ráðgjafi, stýrir m.a. Sprengisandi á Bylgjunni.

Rósa Kristinsdóttir sérfræðingur hjá VEX framtakssjóði, meðstofnandi Fortuna Invest.

Varði unglingsárunum í málingadeild, pípulagningadeild og á skrúfubarnum í BYKO.

„Hrefna Ösp vann frá 13 ára aldri á sumrin hjá afa sínum og ömmu í BYKO en þau  stofnuðu BYKO og voru hennar fyrirmyndir. Á hátíðinni er saga viðurkenningarhafa gjarnan rifjuð upp, öllum í salnum til yndisauka og gaman er að heyra sögur af viðurkenningarhöfum í leik og starfi og að starfsþróun og stjórnendastíll viðkomandi hefjist víða, eins og á skrúfubarnum í BYKO,“ segir Andrea glöð í bragði eftir stórglæsilega og gleðilega Viðurkenningarhátíð.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir sem hlaut FKA viðurkenninguna 2025 með fjölskyldu sinni sem voru stolt af sinni konu.
Mynd: Silla Páls

Andrea minnir á Kvennaárið 2025 sem gengið er í garð. „Mörg félög og kvennasamtök kvenna eiga stórafmæli á árinu 2025 og á árinu munum við minnast mikilvægra atburða sem tengjast kvennabaráttunni. Fimmtíu ár eru liðin í ár frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið á hinum sögulega Kvennafrídegi svo dæmi sé tekið. Nýtum einstakt tækifæri til að rifja upp, þakka fyrir og kynna allt það góða starf sem konur í atvinnulífinu eru að inna af hendi í dag. Sérstakar þakkir vil ég svo færa Coca-Cola á Íslandi sem er styrktaraðili FKA á Kvennaári 2025.

Hjartans hamingjuóskir Hrefna, Geirlaug og Arnhildur!“

Arnhildur Pálmadóttir FKA hvatningarviðurkenningarhafi 2025 með sínu allra besta fólki á Hótel Reykjavík Grand.
Mynd: Silla Páls
Þorgerður Kartín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra með öflugt erindi.
Mynd: Silla Páls
Rakel Garðarsdóttir Vesturporti.
Mynd: Silla Páls
Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA. Mynd: Silla Páls
Lísbet Einarsdóttir framkvæmdastjóri Starfsafli og Þórlaug Jónatansdóttir framkvæmdastjóri.
Mynd: Silla Páls
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri , Hermann Björnsson forstjóri og Margrét Sveinsdóttir fjárfestir.
Mynd: Silla Páls
Fjóla G. Fridriksdóttir SPA of ICELAND og Inga Lára Jónsdóttir verkefnastýra mentor verkefnis FKA Framtíðar og stjórnarkona í FKA Framtíð.
Mynd: Silla Páls

Upptöku af hátíðinni má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland 2025

Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland 2025
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fræðsluskot Óla tölvu: Deepseek skrifar á íslensku

Fræðsluskot Óla tölvu: Deepseek skrifar á íslensku
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórstjarnan lækkaði verðið og seldi loksins villuna

Stórstjarnan lækkaði verðið og seldi loksins villuna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sara vill frekar sjá fólk undir áhrifum MDMA í miðbænum en áfengis – „Þá væru ekki hnífsstungur eða líkamsárásir“

Sara vill frekar sjá fólk undir áhrifum MDMA í miðbænum en áfengis – „Þá væru ekki hnífsstungur eða líkamsárásir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Myndband Sunnevu rataði á mjög frægan miðil

Myndband Sunnevu rataði á mjög frægan miðil
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bill Gates: „Þetta eru mistökin sem ég sé mest eftir“

Bill Gates: „Þetta eru mistökin sem ég sé mest eftir“