fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fókus

„Ég bara vissi að þetta væri maðurinn minn“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 12:30

Kristín og Gulli. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir er fjölskyldumeðferðarfræðingur sem sérhæfir sig í parameðferð og metsöluhöfundur. Hún var gestur í Fókus, spjallþætti DV, í síðustu viku.

Kristín er gift Guðlaugi Aðalsteinssyni, hugmyndasmiði hjá auglýsingastofunni Cirkus. Þau fögnuðu nýverið ellefu hamingjusömum árum saman. Þau gengu í það heilaga árið 2017 og eiga fjögur börn, tvö úr fyrri samböndum og tvö saman.

Sambandsráðgjafinn ræðir um eigið samband, hvernig þau kynntust og hvernig líf þeirra er í dag í Fókus. Brot úr þættinum má horfa á hér að neðan en til að horfa á hann í heild sinni hér eða hlusta á Spotify.

video
play-sharp-fill

Kristín segir þau hjónin mjög samofin. Guðlaugur, eða Gulli eins og hann er kallaður, rekur auglýsingastofu á sömu hæð og Kristín er með sína stofu.

„Þannig við erum í sama húsi, á sömu hæð og borðum saman hádegismat á hverjum degi og förum saman í vinnuna,“ segir hún.

„Vissum bæði hvað við vildum og hvað við vildum ekki“

Aðspurð hvernig það sé að vera sambandsráðgjafi í sambandi segir Kristín ekki taka vinnuna með heim.

„Ég er ekki hjónabandsráðgjafinn okkar og ég er alveg mannleg eins og allir aðrir og fell alveg í sömu gryfjurnar og annað fólk. En við eigum mjög gott ástarsamband og kannski er ein af ástæðunum fyrir því að við kynntumst þegar við vorum komin á þann aldur að við vorum búin að eignast sitthvort barnið og búin að prófa að vera í öðrum samböndum og svona,“ segir hún og bætir við:

„Við komum reynslurík inn í sambandið okkar, vissum bæði hvað við vildum og hvað við vildum ekki. Við höfum hlúð vel að því og verið ótrúlega þakklát fyrir sambandið okkar.“

Kynntust eftir ár sjálfsvinnunar

Kristín og Gulli kynntust í gegnum sameiginlega vini.

„Ég var búin að eiga frekar leiðinlegt ár árið 2013 – sem ég er samt ofboðslega þakklát fyrir – þar sem ég var einstæð móðir og hafði verið í einhverri markvissri vinnu að maxa sjálfa mig,“ segir hún.

Kristín viðurkennir að það hafi verið þreytandi til lengdar og hún hafi tekið eitt ár í þessa miklu sjálfsvinnu.

„Ég hugsaði að ef ég er besta útgáfan af sjálfri mér þá er ég líklegri til að hitta einhvern einstakling sem er líka besta útgáfan af sér. Og tveir einstaklingar með sterka sjálfsmynd eru líklegri til að vera í góðu ástarsambandi. Þannig að ég var bara að leggja mitt af mörkum í þá vinnu og var eiginlega ekki við karlmann kennd á því ári, var bara að hugsa um sjálfa mig,“ segir hún.

„Svo 1. janúar 2014 fæ ég vinabeiðni frá honum.“

Það var ekki aftur snúið. „Ég sá bara að þetta væri að fara að vera gott ár […] Ég bara vissi að þetta væri maðurinn minn,“ segir hún brosandi.

Hún ræðir nánar um þetta og segir frá fyrsta stefnumótinu og fyrsta kossinum í spilaranum hér að ofan. Smelltu hér til að horfa á þáttinn í heild sinni eða hlustaðu á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Hægt er að kynna sér Kristínu nánar á kristintomas.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sara vill frekar sjá fólk undir áhrifum MDMA í miðbænum en áfengis – „Þá væru ekki hnífsstungur eða líkamsárásir“

Sara vill frekar sjá fólk undir áhrifum MDMA í miðbænum en áfengis – „Þá væru ekki hnífsstungur eða líkamsárásir“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eru dularfullu flygildin í raun leynivopn hulduaflanna?

Eru dularfullu flygildin í raun leynivopn hulduaflanna?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bill Gates: „Þetta eru mistökin sem ég sé mest eftir“

Bill Gates: „Þetta eru mistökin sem ég sé mest eftir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Beggi Ólafs fagnaði stórum áfanga – „Það er erfitt trúa þessu“

Beggi Ólafs fagnaði stórum áfanga – „Það er erfitt trúa þessu“
Hide picture