Ásgeir Rúnar Helgason, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu, ritar grein í Morgunblaðið í dag um vanda tengdan blöðruhálskirtilinum. Algengt að fjarlægja þurfi líffærið úr mönnum á efri árum vegna krabbameins, en það leiðir til risvandamála og brotthvarfs fullnægingartilfinningar, sem er mönnum mikið áfall.
„Blöðruhálskirtillinn hefur það stóra hlutverk í tímgun, ásamt sáðblöðru, að framleiða næringarvökva fyrir sæðisfrumurnar úr pungnum til að synda í. En líffærið er einnig afar mikilvægt fyrir lífsgæði, enda mikilvægur hlekkur í myndun fullnægingar hjá körlum. Vökvinn losnar við örvun lims sem leiðir til krampa sem veita unað. Samhliða unaðskrömpum (fullnægingunni) flæðir næringarvökvinn úr kirtlinum (og sáðblöðrum) niður þvagrásina þar sem hann blandast sæðisfrumum úr pungnum. Þetta gerist allt svo að segja samtímis og því upplifa menn þetta sem einn atburð, en fullnægingin og sáðlátið eru samt í raun tveir atburðir,“
segir Ásgeir í grein sinni og víkur síðan að reisninni:
„Til að koma vökvanum með sæðisfrumunum til skila inn í leg konu þarf ákveðna reisn. Full reisn þverr með stígandi aldri og veldur það flestum körlum miklu hugarangri, ekki síst þegar reisnin þverr skyndilega, t.d. sem afleiðing meðferða við krabbameini í blöðruhálskirtlinum (prostata). Þetta gerist þegar taugar sem tengjast reisn skaddast, en þær liggja þétt við kirtilinn.“
Ef krabbamein greinist í blöðruhálskirtlinum þarf oft að fjarlægja hann. Dregur það mjög úr reisn og getur manna til að hafa samfarir. Þetta getur orðið mönnum mikið áfall:
„Þegar prostatinn (blöðruhálskirtilinn) er fjarlægður að hluta eða öllu leyti dregur það yfirleitt verulega úr reisn og getu manna til að hafa samfarir án hjálpartækja. Það er nokkuð þekkt að missir fullrar reisnar er flestum mönnum áfall, en oft er hægt að bæta reisn með lyfjagjöf eða annarri meðferð. Það er ekki jafn útbreidd þekking að missir fullnægingarnautnar er flestum körlum álíka mikið áfall og missir reisnar, en við því eru ekki til nein lyf. Eina meðferðin sem er í boði er að hjálpa mönnum að sætta sig við orðinn hlut, eða búa þá undir það sem koma skal. Þar geta ráðgjafar Krabbameinsfélagsins aðstoðað skjólstæðinga að kostnaðarlausu.“
Ásgeir vekur athygli á starfsemi félagsins Framför, sem er aðilarfélag Krabbameinsfélagið. Framför er vettvangur fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra. Sjá vefsíðu félagins.