fbpx
Laugardagur 21.desember 2024
Fókus

Lætur ung börn sín borga leigu – Segir skólakerfið ekki kenna þeim nóg um fjármál

Fókus
Sunnudaginn 8. september 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir í Bretlandi hefur vakið talsverða athygli á TikTok eftir að hún opinberaði sig um það að hún láti ung börn sín sem eru á barnaskólaaldri borga einskonar „leigu“.

Þetta gerir hún til að kenna börnunum að fara betur með peninga og undirbúa þau betur áður en þau fara sjálf að huga að fjárhagslegum skuldbindingum.

Budget with Milly heitir umrædd síða á TikTok en þar segir móðirin, Milly, frá því að börn hennar geti unnið sér inn fimm pund í viku fyrir að hjálpa til við hin hefðbundnu verkefni sem sinna þarf á heimilinu.

Í hverri viku er svo eitt pund dregið frá fyrir leigu, eitt pund fyrir mat og eitt pund frá fyrir notkun á húsbúnaði heimilisins og fylgihlutum. Í hverri viku hafa börnin því tvö pund í afgang í einskonar vasapening. Til glöggvunar má benda á að eitt pund jafngildir 183 íslenskum krónum.

„Áður en þau ákveða að eyða þessum tveimur pundum spyrjum við þau hvort þau hafi efni á því sem þau langar að kaupa sér, hvort þetta sé eitthvað sem þau langar í eða þurfi og hvort þau telji sig verða ánægð með kaupin í náinni framtíð.“

Milly segir að þetta geri þau til að koma í veg fyrir það sem kalla mætti „tilfinningaleg skyndikaup“ þar sem skyndilegri löngun í að kaupa einhvern hlut, til dæmis sælgæti, er svalað án mikillar umhugsunar.

Milly bendir á að börn hafi ekki ýkja mikið fjármálalæsi og þar megi skólarnir koma sterkari inn. Ákvað Milly því að taka þetta í eigin hendur og segir hún að árangurinn hafi verið góður, þetta fyrirkomulag hafi gefist mjög vel fyrir alla í fjölskyldunni.

Eins og bent er á í umfjöllun Mirror eru sumir á því að Milly gangi ef til vill of langt þegar hún kennir börnunum sínum fjármálalæsi með þessum hætti. „Þetta er eitthvað sem mætti gera þegar börnin eru komin á unglingsárin en ekki þegar þau eru svona ung,“ segir til dæmis einn í gagnrýni sinni.

Aðrir eru þó á því að þetta sé mjög góð leið til að kenna börnum að sýna ábyrgð á eigin fjárhag.

@budgetwithmillyThe best way to teach kids about money🥰

♬ original sound – Budget With Milly

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Christina Aguilera fækkaði fötum fyrir 44 ára afmælið

Christina Aguilera fækkaði fötum fyrir 44 ára afmælið
Fókus
Í gær

Myndir af leikkonunni settu allt á hliðina og nú svarar hún tröllunum fullum hálsi – Málið vekur upp spurningar um kröfur karla til kvenna

Myndir af leikkonunni settu allt á hliðina og nú svarar hún tröllunum fullum hálsi – Málið vekur upp spurningar um kröfur karla til kvenna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jólaflug Play sló í gegn – „Þetta var mikil vinna en allt þess virði“

Jólaflug Play sló í gegn – „Þetta var mikil vinna en allt þess virði“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bogi kaupir á Brúnastöðum

Bogi kaupir á Brúnastöðum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kærastinn hættur að veita henni athygli – Íhugar að verða klámstjarna

Kærastinn hættur að veita henni athygli – Íhugar að verða klámstjarna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur sannfærðir um að þetta hafi verið leynileg skilaboð Bieber til fyrrverandi

Aðdáendur sannfærðir um að þetta hafi verið leynileg skilaboð Bieber til fyrrverandi