fbpx
Miðvikudagur 04.september 2024
Fókus

Júlí sækir ítrekað sendingar fyrir Dísu – „Við þurfum örugglega að fara að hitta einhvern ráðgjafa“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. september 2024 13:01

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mögulega er fæðingarorlof Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur leik-og söngkonu farið að lengjast í annan endann, því hún virðist hafa nægan tíma til að versla fleiri skipulagsbox inn á heimilið.

Um daginn birtum við fyndið myndband frá henni þar sem skipulagið varð henni ofviða og hún hóaði í unnustann, Júlí Heiðar Halldórsson, leikara og söngvara, sér til aðstoðar.

Sjá einnig: Boxskipulagið varð Dísu Reykjavíkurdóttur ofviða – „Endaði bara eins og kaosið sem líf mitt er“

Í nýjasta myndbandinu birtir Dísa myndband af Júlí þar sem hann kemur heim og er eins og margur heimilismaður á heimleið beðinn um að koma við á pósthúsinu og sækja sendingu, margar í þessu tilviki. Júlí er með fullt fangið þegar hann kemur heim.

„Hvað er þetta? Þau eru í alvöru farin að þekkja mig þarna. Hver kemur og sýnir sex QR kóða, oft í viku! Hvaða drasl er þetta eiginlega?“ andvarpar Júlí. „Sko ef ég fer í bakinu við þetta þá borgar þú sjúkraþjálfarann,“ segir hann pirraður.

„Við þurfum örugglega að fara að hitta einhvern ráðgjafa held ég,“ segir hann og hlær svo þegar Dísa botnar með „fjármálaráðgjafa.“

@thordisbjork Ok leave a comment ef þið viljið sjá myndbandið þegar hann fattar að þetta eru fleiri ✨skipulags box✨ 🥰🥰 @Júlí Heiðar #fyp #fyrirþig #islenskt #fyrirþigsíða #islensktiktok #jullifrændi ♬ Monkeyshine-JP – Lt FitzGibbons Men

„Ok leave a comment ef þið viljið sjá myndbandið þegar hann fattar að þetta eru fleiri skipulags box,“ skrifar Dísa með myndbandinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sunneva: „Ég hef áhyggjur af því að fólk fari að versla jólagjafirnar fyrir börnin sín á þessum síðum“

Sunneva: „Ég hef áhyggjur af því að fólk fari að versla jólagjafirnar fyrir börnin sín á þessum síðum“
Fókus
Í gær

Grófu upp vandræðalegt tíst Liam Gallagher frá árinu 2017

Grófu upp vandræðalegt tíst Liam Gallagher frá árinu 2017
Fókus
Fyrir 2 dögum

Brad Pitt og kærastan stíga fram í sviðsljósið

Brad Pitt og kærastan stíga fram í sviðsljósið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir aðila nátengda ráðhúsinu hafa ráðist að henni með látum á Dönsku kránni

Segir aðila nátengda ráðhúsinu hafa ráðist að henni með látum á Dönsku kránni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sagt að léttast þegar hún leitaði fyrst til læknis 15 ára vegna fótaverkja – Greind með lítt þekktan en algengan sjúkdóm áratug síðar

Sagt að léttast þegar hún leitaði fyrst til læknis 15 ára vegna fótaverkja – Greind með lítt þekktan en algengan sjúkdóm áratug síðar
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Fyrir aldarfjórðungi týndust tvær litlar systur í óveðri og aldrei hefur neitt til þeirra spurst“

„Fyrir aldarfjórðungi týndust tvær litlar systur í óveðri og aldrei hefur neitt til þeirra spurst“