fbpx
Þriðjudagur 03.september 2024
Fókus

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Fókus
Þriðjudaginn 3. september 2024 19:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjátíu og sjö ára karlmaður segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa komist að því að eiginkona hans er búin að vera að halda fram hjá honum. Maðurinn leitaði til Deidre Sanders, sambandsráðgjafa The Sun, sem heldur úti hinum vinsæla dálki Dear Deidre.

Þannig er mál með vexti að konan mannsins, sem einnig er 37 ára, starfar sem yfirflugfreyja hjá ónefndu flugfélagi og hefur hún átt í leynilegu sambandi við flugmann í sama fyrirtæki. Maðurinn segist vera miður sín, ekki bara vegna þess að hún er ekki lengur ástfangin af honum heldur einnig farin að stunda kynlíf með öðrum manni.

„Hún hefur alltaf verið metnaðarfull og er sú sem fær mestar tekjur á heimilinu. Ég dvel heima löngum stundum með börnunum okkar þremur sem eru tíu, sjö og þriggja ára.“

Hann bætir við að hann hafi lagt áherslu á að eignast börn og eiginkona hans hafi fallist á það með því skilyrði að hann myndi sjá um þau að mestu þar sem hana langaði að komast sem fyrst út á vinnumarkaðinn. Þau kynntust fyrir 13 árum þegar maðurinn starfaði hjá sama fyrirtæki og féllu þau fyrir hvort öðru í starfsmannagleði.

„Til að byrja með var sambandið fullkomið. Það var ástríkt og við tókum mikið tillit til hvors annars. Kynlífið var gott en eftir að börnin komu til sögunnar gat hún ekki beðið eftir að komast aftur í vinnuna. Mér fannst í góðu lagi að vera heima með þau, sjá um að elda matinn, þrífa og sinna þessum daglegu verkefnum,“ segir maðurinn.

Eftir því sem árin liðu segir maðurinn að þreyta hafi komið í sambandið og um síðustu jól hafi hann rætt við eiginkonu sína um stöðu sambandsins. Þá hafi hún varpað þeirri sprengju að hún væri í raun ekki ástfangin lengur af honum. „En svo spurði hún: En það er alveg eðlilegt, ekki satt?“

Maðurinn segir að eiginkona hans hafi svo fyrir skemmstu gleymt símanum sínum úti í bíl og skyndilega hafi hann byrjað að pípa. Forvitnin bar hann ofurliði og kom að lokum í ljós að um var að ræða skilaboð frá flugmanni sem bentu ótvírætt til þess að þau ættu í ástarsambandi og hefðu hist reglulega í vinnuferðum síðustu vikur og mánuði. Það væri sárt að vita að hún hefði farið í „háloftaklúbbinn“ svokallaða með öðrum en honum.

Maðurinn segir við Deidre að hann sé eyðilagður vegna málsins en viti ekki hvað hann eigi að gera, eða hvernig hann eigi að nálgast þetta umræðuefni við eiginkonuna.

Deidre segir í pistlinum sínum að eðli málsins samkvæmt sé hann sár og reiður en hvetur hann til að útiloka ekki að sambandið geti átt sér framtíð.

„Hún hefur ekki enn viðurkennt framhjáhald en láttu hana vita að þú hafir séð skilaboðin. Biddu hana um að vera heiðarleg því alveg sama hvað þið gerið, hvort þið farið í sitt hvora áttina eða verðið áfram saman, þurfið þið að vita hvar sambandið fór af leið. Aðeins á þeim tímapunkti getið þið áttað ykkur á því hvað þarf að breytast. Ég hvet þig til að leita til hjónabandsráðgjafa, annað hvort einn eða með konunni þinni. Það mun hjálpa ykkur að komast í gegnum þennan erfiða tíma. Framhjáhald þarf ekki sjálfkrafa að þýða að sambandinu sé lokið. Það getur verið upphafið að betra og traustara hjónabandi nema annað hvort ykkar ákveður að gefast upp.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bragi flutti skuldum vafinn til Miami en sneri blaðinu við með dugnaði og elju – Efnaðist á fasteignum og rekur öflugt fyrirtæki ytra

Bragi flutti skuldum vafinn til Miami en sneri blaðinu við með dugnaði og elju – Efnaðist á fasteignum og rekur öflugt fyrirtæki ytra
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kardashian-systir segist laðast kynferðislega að sjálfri sér

Kardashian-systir segist laðast kynferðislega að sjálfri sér
Fókus
Fyrir 3 dögum

Andrúmsloftið þungt meðan Fanney Dóra og Aron biðu eftir fréttum um aðgerð dóttur þeirra – „Svo kom hann inn brosandi“

Andrúmsloftið þungt meðan Fanney Dóra og Aron biðu eftir fréttum um aðgerð dóttur þeirra – „Svo kom hann inn brosandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Er Dagur Sig betri en orginal söngvarinn?

Er Dagur Sig betri en orginal söngvarinn?