fbpx
Laugardagur 28.september 2024
Fókus

Ég er það sem ég sef

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 28. september 2024 18:30

Svikaskáld

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega kom út ljóðabókin, Ég er það sem ég sef, sem er fimmta verkið sem Svikaskáld gefa út. Bókin er galsafengin og margræð ljóðabók um bugun og nýjar víddir, stiga sem ögra náttúrulögmálum, konur sem hringlar í og niðurföll sem soga til sín lífið sjálft.


Mynd á kápu er verk eftir Helenu Margréti Jónsdóttur

Svikaskáld er höfundakollektíf sex kvenna, þeirra Fríðu Ísberg, Melkorku Ólafsdóttur, Ragnheiðar Hörpu Leifsdóttur, Sunnu Dísar Másdóttur, Þóru Hjörleifsdóttur og Þórdísar Helgadóttur.

Áður hafa þær sent frá sér ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd (2017), Ég er fagnaðarsöngur (2018) og Nú sker ég netin mín (2019) auk skáldsögunnar Olíu (2021) en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Affall

Frá því að hann féll og reis aldrei upp aftur höfum

við passað okkur á stiganum, passað okkur í

stiganum, passað okkur í öllum stigum í öllum

partíum. Það er alveg sama hvort þeir eru teppalagðir

eða gljáfægðir, það sullast alltaf í teppið, negróní eða

púrtvín, eitthvað rautt og óafturkræft. Brjóstholið

er postulínsbjalla, hjartað er bjallan og þindin er

kólfurinn, en það er sama hvað við pössum okkur, á

eftir hverju þrepi kemur annað þrep og það er hálla

en hitt á undan, neðstu þrepin eru hreint út sagt

sleip af bleytu, já löðrandi alveg hreint, þau liggja

úr þvottahúsinu gegnum kartöflugeymsluna niður í

risið undir súðinni og við þurfum að beygja okkur

ofan í gólf þegar við stígum niður í efsta þrepið.

Sunna Dís Másdóttir

 

Til varnar björnum/börnum

Ég safna baugum

dýrmætir spretta þeir fram undan

augunum

skreyttir tárum og örfínum hárum

að óska sér og blása á

ég þræði þá upp á

ökklana svo hringli í

þegar ég geng um

í skóginum

konur sem ekki býðst

að fara í híði

bjarga sér

Melkorka Ólafsdóttir

 

Glósur

Og svo sitjum við, stilltar

og glósum og glósum meira

 

biðjum eina um að endurtaka

þegar hún talar of hratt

 

svona á að sýna áhuga:

lyftu augabrúnunum og brostu

 

svona á að klifra upp stiga

á fjórum fótum, gætilega

 

kasta sýklahræðslunni fyrir róða

þegar hendurnar feta fótsporin

 

og halda síðar, stuttu síðar

á brauðsneið með smjöri

 

hafðu þetta eftir:

batnandi mönnum

glöggt er

engin verður óbarin

 

við myndum kóngulóarvef

og svo myndum við keðju

 

hver og ein okkar, að sjálfsögðu

veikasti hlekkurinn

 

einu sinni lánaði ég strák

glósurnar mínar, fyrir líffræðipróf

 

ekki frábærar glósur greinilega

því hann kyssti aðra stelpu á vorballinu

 

nokkrum árum síðar

þegar ég sat með manninum mínum í áfanga

áður en hann varð maðurinn minn

 

glósaði ég ekkert nema hálsinn á honum

úlnliðina, prófílinn

 

ég féll í áfanganum en líkami minn bjó til barn

upp úr þessum glósum

 

og náði

næstum því

öllu rétt

Fríða Ísberg

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hún er æðisleg þegar allt gengur upp fyrir hana en djöfull í mannsmynd þegar á móti blæs“

„Hún er æðisleg þegar allt gengur upp fyrir hana en djöfull í mannsmynd þegar á móti blæs“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur Bridgerton í sárum eftir að ballið breyttist í martröð – „Við eyddum 56 þúsund krónum til að kaupa okkur inn í þessu ömurlegu lífsreynslu“

Aðdáendur Bridgerton í sárum eftir að ballið breyttist í martröð – „Við eyddum 56 þúsund krónum til að kaupa okkur inn í þessu ömurlegu lífsreynslu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svala tekur fyrir að hún sé í makaleit – „Þessi póstur á mínu Insta er ekki auglýsing til að fara á deit“

Svala tekur fyrir að hún sé í makaleit – „Þessi póstur á mínu Insta er ekki auglýsing til að fara á deit“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Framhjáhald kærustunnar hafði óvæntar afleiðingar – Hún má endurtaka leikinn með einu skilyrði

Framhjáhald kærustunnar hafði óvæntar afleiðingar – Hún má endurtaka leikinn með einu skilyrði
Fókus
Fyrir 4 dögum

Helgi segir muna mestu um góða skapið á efri árum – „Í þessum heimi er stórkostlegt að fá að eldast“

Helgi segir muna mestu um góða skapið á efri árum – „Í þessum heimi er stórkostlegt að fá að eldast“