fbpx
Föstudagur 27.september 2024
Fókus

Gunnar þekkti einkennin þegar vinahjón hans glímdu við dularfull veikindi og gaf þeim ráð – „Þremur dögum seinna hringdu þau svo í mig“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 27. september 2024 09:59

Gunnar Dan Wiium. Myndin tengist fréttinni ekki beint. (Pexels)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Dan Wiium, umsjónarmaður hlaðvarpsins Þvottahúsið, segir að dýna, sem hann trúði að væri góð heilsu hans, hafi hægt og rólega verið að hafa þveröfug áhrif. Hann hafi um tíma ekki áttað sig á hvað væri vandamálið, og þegar hann gerði það loksins var það sem betur fer ekki of seint. Hann segist viss um að það hefði farið verr ef hann hefði ekki gripið tímanlega til aðgerða.

Gunnar opnar sig um raunir sínar í pistli á Vísi.

„Málið er að árið 2014 fjárfesti ég í svona dýnu eins og „fullorðins“ fólk myndi kaupa sér, alveg rándýr og leit ég á það sem merki um gæði, rándýra heilsudýnan. En allan tímann sem ég átti hana skildi ég aldrei af hverju ég svæfi oftast betra annars staðar en heima hjá mér, ég bara skildi það ekki. Ég skildi aldrei af hverju ég væri svona illa hvíldur, stirður og með þessa óþægilegu tilfinningu húðsviða og hita eftir nóttina á rándýru heilsudýnunni minni,“ segir hann.

„Til að gera langa sögu stutta sem eflaust hefur verið sögð hundrað sinnum áður, þá fór svo að vitrun átti sér stað og ég henti „morðdýnunni“ og keypti mér heilnæma dýnu sem unnin var úr 100% náttúrulegum efnum og viti menn, allt lagaðist kviss bamm yfir nótt. Ég lagðist í hana og hún tók á móti mér á hátt sem ég hafði aldrei fundið áður. Ég vaknaði opin og liðugur, engar bólgur sem sérstaklega höfðu komið fram í mjóbaki og útlimum í mínu tilfelli.“

„Eitra fyrir þeim allar nætur“

Gunnar ber nýju dýnunni enn góða sögu.

„Svo hafa nokkur ár liðið og ennþá er ég eins og nýr maður miðað við hvar ég var þegar ég baðaði mig í eitruðum rokgjörnum efnum 8 tíma á sólarhring, en nýlega átti ég samtal við hjón sem standa mér nærri. Maðurinn sagðist vakna allar nætur í svita svo að bolir og nærföt límdust við hann og bæði vöknuðu þau illa hvíld, bólgin og þrútin, þar að auki var konan orðin illa haldin af útbrotum og exemi sem læknar virtust enga skýringu hafa á,“ segir hann.

Gunnar kannaðist við einkennin. „Eftir að ég tönglaðist í þeim um mikilvægi náttúrulegra svefnvara létu þau til leiðast og þremur dögum seinna hringdu þau svo í mig. Karlinn, sem í mörg ár hafði ekki upplifað þurra nótt, var allt í einu farin að sofa samfellt alla nóttina og það skráfaþurr. Útbrot, sviði, exem og bólgur hurfu eins og dögg fyrir sól og eftir sátu þau alveg gáttuð á þessu, trúðu þessu varla, að þetta væri það eina, bara að dýnan og koddinn hefði verið að eitra fyrir þeim allar nætur.“

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Getty

„Eyðileggja gott heilsuspillandi partý“

Allt þetta vakti sterka þörf hjá Gunnari að rýna aftur í þetta og benda fólki á „skaðsemi vissra efna sem í óregluvæddu umhverfi leika lýðinn grátt og eru orðin stór orsök slæmrar lýðheilsu“.

„Í því samhengi rakst ég á grein sem skrifuð hafði verið af hjúkrunarfræðingi nokkrum sem gaf mér góðfúslegt leyfi til að vinna úr að einhverju leyti hvað varðar tæknileg atriði. Svo hér kemur partý-púberinn og það skal sagt að ef þú lesandi góður sem málið varðar vilt ekki eyðileggja gott heilsuspillandi partý þá ráðlegg ég þér að stöðva lesturinn hér og gera bara eitthvað allt annað.“

Gunnar ræðir um „memory foam“, hvað skal varast og hvað skal leita eftir að hans mati þegar dýna er keypt.

Hann fer einnig yfir „tvö efni sem eru í þekkt í „heilsudýnunum“. Þessi efni eru ekki eldvörn en þjóna öðrum tilgangi.“

„Eitt helsta eitraða rokgjarna efnið sem kemur frá dýnum sem innihalda minnis-svamp er formaldahyde sem er þekktur krabbameinsvaldur. Formaldehyde er notað sem lím eða binding sem heldur dýnunni saman. Efnið hefur verið tengt við astma, aukna tíðni ofnæmis, aukna tíðni lungnakrabbameins sem og krabbameins í hálsi og nefi. Getur einnig valdið ofþreytu, húðútbrotum og alvarlegu bráðaofnæmi.

Svo er það Naphthalene sem er rokgjarnt efni sem er búið til úr annað hvort kolatjöru eða jarðolíu sem búið er að eima og er að stórum hluta nýtt sem skordýrafæla. Fólk sem andar af sér naphthalene útgufun fær höfuðverki, ógleði, uppköst, svima og ef það fær nógu stóran skammt af efninu getur það fengið blóðlýsublóðleysi. Þegar Naphthalene gufur komast inn í líkamann er efnið brotið niður í önnur efni sem hafa áhrif á frumur líkamans og valda vefja, lifrar og nýrnaskaða,“ segir hann.

Gunnar fer nánar yfir þessi efni í pistlinum, sem má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Svala tekur fyrir að hún sé í makaleit – „Þessi póstur á mínu Insta er ekki auglýsing til að fara á deit“

Svala tekur fyrir að hún sé í makaleit – „Þessi póstur á mínu Insta er ekki auglýsing til að fara á deit“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Poppstjarna nær óþekkjanleg í dag

Poppstjarna nær óþekkjanleg í dag
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sonur Fanneyjar Dóru og Arons kominn í heiminn

Sonur Fanneyjar Dóru og Arons kominn í heiminn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gummi Emil tjáir sig nánar um málið – „Mikilvægt að hafa fagfólk með sér, ekki einhverja rugludalla“

Gummi Emil tjáir sig nánar um málið – „Mikilvægt að hafa fagfólk með sér, ekki einhverja rugludalla“