fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fókus

„Hún er æðisleg þegar allt gengur upp fyrir hana en djöfull í mannsmynd þegar á móti blæs“

Fókus
Miðvikudaginn 25. september 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum starfsmenn hertogaynjunnar Meghan Markle kalla hana djöful í mannsmynd sem hafi reglulega hagað sér eins og brjálæðingur gegn þeim. Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Beast.

Meghan Markle var lýst sem umhyggjusömum yfirmanni í nýlegi umfjöllun Us Weekly  á þriðjudaginn. Þar sögðu núverandi starfsmenn að hertogaynjan væri frábær og gjafmild við starfsmenn. Líklega var sú umfjöllun viðbragð við frétt Hollywood Reporter þar sem Markle var kölluð einræðisherra á háum hælum sem getur grætt fullvaxta karlmenn.

Nú hafa fyrrum starfsmenn hertogaynjunnar rætt við Daily Beast og segja að vissulega hafi Markle fengið slæma útreið í fjölmiðlum eftir að hún ákvað að yfirgefa hirðina í Bretlandi. Allar hennar verstu stundir hafi verið sprengdar upp úr öllu valdi hjá breskum miðlum og slitnar alfarið úr samhengi.

„Að því sögðu þá komu virkilega slæmir tímar, jafnvel stundir þar sem hún hegðaði sér eins og brjálæðingur. Ég var vitni að  því þegar hún hellti sér yfir fólk í eigin persónu sem og í gegnum símann. Hún lét fólk upplifa sig einskis nýtt. En þetta gerðist á mjög streituvaldandi tímabilum svo ég hef þann fyrirvara. Hún segir sjálf að hún hafi glímt við sjálfsvígshugsanir á þessum tíma.“

Þessi fyrrum starfsmaður, sem óskaði nafnleyndar, minnti eins á að fyrrum upplýsingafulltrúi Markle, þegar hún bjó enn í Bretlandi, hafi formlega kvartað undan henni eftir að hún hrakti tvo aðstoðarmenn frá störfum með eineltistilburðum.

Annar starfsmaður starfaði fyrir Markle í aðdraganda brúðkaups hennar og Harry Bretaprins. Hann segir: „Mér fannst hún alltaf vera klassískur narsissisti, og það að hún sé að láta starfsfólk sitt ræða við fjölmiðla um hvað hún sé frábær núna staðfestir bara þann grun minn. Hún er æðisleg þegar allt gengur upp fyrir hana en djöfull í mannsmynd þegar á móti blæs“

Annar heimildarmaður segir sögu af blómaskreyti sem lenti í því að Markle öskraði á hana í heila klukkustund í gegnum síma. „Hún sór þess í kjölfarið eið að vinna aldrei með Meghan aftur, þó það gæti orðið frama hennar til góðs. Þeir sem starfa fyrir hana lenda gjarna í því að komið er fram við þá sem einnota starfsmenn sem megi koma fram við eins og skít.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Lífið breyttist eftir að vinkona Elvu drukknaði í Bláa lóninu – „Það var ekki áfallahjálp árið 1997“

Lífið breyttist eftir að vinkona Elvu drukknaði í Bláa lóninu – „Það var ekki áfallahjálp árið 1997“
Fókus
Í gær

Önnur kona stígur fram vegna Diddy – Lýsir hrottafenginni nauðgun sem var „tekin upp og sýnd sem klám“

Önnur kona stígur fram vegna Diddy – Lýsir hrottafenginni nauðgun sem var „tekin upp og sýnd sem klám“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Birtir fleiri einstakar myndir úr fórum hermanns sem var á Íslandi á sjötta áratugnum

Birtir fleiri einstakar myndir úr fórum hermanns sem var á Íslandi á sjötta áratugnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Erfiðu tímarnir gera okkur betri í því að vera hjón“

„Erfiðu tímarnir gera okkur betri í því að vera hjón“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gummi Emil tjáir sig nánar um málið – „Mikilvægt að hafa fagfólk með sér, ekki einhverja rugludalla“

Gummi Emil tjáir sig nánar um málið – „Mikilvægt að hafa fagfólk með sér, ekki einhverja rugludalla“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stærsti skandall J.Lo dreginn fram í dagsljósið – Handtekin með Diddy eftir skotárás

Stærsti skandall J.Lo dreginn fram í dagsljósið – Handtekin með Diddy eftir skotárás