fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fókus

Gekkst undir leynilega fegrunaraðgerð áður en hún sótti um skilnað

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 19. september 2024 09:16

Jax Taylor og Brittany Cartwright. Myndir/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Brittany Cartwright viðurkennir að hafa gengist undir leynilega fegrunaraðgerð áður en hún sótti um skilnað frá raunveruleikastjörnunni Jax Taylor.

Brittany, 35 ára, kom Jax, 45 ára, verulega á óvart með því að sækja um skilnað í lok ágúst. Þau höfðu verið skilin að borði og sæng síðan í febrúar en Jax sagði í hlaðvarpsþætti í byrjun september að hann hafi aldrei búist við að hún myndi taka lokaskrefið.

„En ég álasa henni ekki fyrir þetta. Ég meina, ég á erfitt með að trúa að hún hafi verið svona lengi með mér til að byrja með,“ sagði hann.

Parið á þriggja ára son saman, Cruz.

Brittany Cartwright Struggles to 'Be in the Same Room' as Ex Jax Taylor
Brittany og Jax. Myndir/Getty Images

Gekkst undir fegrunaraðgerð

Brittany sagði frá því í samtali við DailyMail að hún hafi farið í fitusog og húðstrekkingu í maí til að undirbúa „hefndarkroppinn“ fyrir sumarið.

„Ég vildi líta vel út eftir allt sem ég hef þurft að ganga í gegnum þetta ár,“ sagði hún. „Ég vildi líta vel út, ég vildi fá neistann aftur.“

Aðgerðin var framkvæmd á kviðnum. „Ég vildi smá aðstoð við að skerpa á kviðnum því hann hefur ekki verið eins eftir að ég átti son minn [árið 2021]. En nú er ég minni og líður frábærlega,“ sagði hún.

Mynd/Instagram

Styrkir einnig innri mann

Þó Brittany hafi gengist undir fegrunaraðgerð þá hefur mesta sjálfsvinnan snúist að því að styrkja innri mann.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá bjóst ég við því að vera með Jax að eilífu, þannig þetta er nýtt fyrir mig. Það er að taka smá tíma að jafna mig og halda áfram.“

Brittany og Jax kynntust fyrst í Las Vegas árið 2015. Áhorfendur fengu að fylgjast með sambandi þeirra í raunveruleikaþáttunum Vanderpump Rules og síðan í Jax & Brittany Take Kentucky. Þau gengu í það heilaga í júní 2019.

Fyrsti framhjáhaldsskandallinn var árið 2017 þegar Jax hélt framhjá Brittany með sjónvarpsstjörnunni Faith Stowers. Þau hættu saman en byrjuðu aftur saman nokkrum mánuðum seinna. Undanfarið ár hafa kjaftasögur verið á kreiki um að Jax hafi ekki verið trúr Brittany. Hann hefur neitað fyrir það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjöttu alþjóðlegu Kvikmyndaverðlaun Ljósbrots

Sjöttu alþjóðlegu Kvikmyndaverðlaun Ljósbrots
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl