fbpx
Þriðjudagur 24.desember 2024
Fókus

Skuggaleg hegðun Sean Combs: Margra daga orgíur, barnaolía í lítravís og vökvi í æð

Fókus
Miðvikudaginn 18. september 2024 14:30

Sean „Diddy“ Combs. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski tónlistarmaðurinn Sean „Diddy“ Combs gæti átt þungan fangelsisdóm yfir höfði sér vegna gruns um mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Nú hefur Daily Mail varpað ljósi á skuggalegt líferni rapparans síðustu ár sem lesa má í ákæruskjölum saksóknara.  

Rapparinn var handtekinn í New York á mánudag eftir að niðurstaða ákærudómstóls lá fyrir. Fyrr á þessu ári gerði bandaríska alríkislögreglan, FBI, allsherjar leit á heimilum hans og áður hafði fyrrverandi kærasta hans, Cassandra Venture, stigið fram og sakað hann um ítrekuð kynferðisbrot og ofbeldi.

„Freak offs“

Daily Mail vísar í gögn frá ákæruvaldinu sem virðast sýna vægast sagt syndsamlegt líferni kappans. Hann er sagður hafa haldið fjölmargar orgíur þar sem vændiskonur, eiturlyf og barnaolía í lítravís komu meðal annars við sögu.

Hann er sagður hafa borgað flug undir vændiskonur frá öllum heimshornum til að taka þátt í kynsvallsveislum sem stundum stóðu yfir í nokkra daga. Diddy er sagður hafa skipulagt þessar veislur og stýrt þeim og meðal annars „stundað sjálfsfróun“ á meðan á þeim stóð. Á sama tíma er hann sagður hafa útvegað þessum konum fíkniefni á borð við ketamín og MDMA og efni sem kallast BHB sem á meðal annars að auka úthald.

Þessar orgíur gengu undir nafninu „freak offs“ og voru svo ákafar, samkvæmt ákæruskjölum, að Diddy og „fórnarlömb hans fengu vökva í æð að þeim loknum“. Er Diddy sagður hafa borgað körlum sem tóku þátt í svallveislunum en ekki konum og raunar hótað þeim öllu illu og beitt þær ofbeldi ef þær tækju ekki þátt.

Skemmdir á hótelherbergjum

Veislurnar fóru fram víða og ekki bara á heimilum Diddy. Starfsmenn á hans vegum eru sagðir hafa pantað hótelherbergi þar sem ýmislegt misjafnt átti sér stað. Eru starfsmenn sagðir hafa fyllt herbergin, eða íbúðirnar, af barnaolíu, sleipiefnum og auka rúmfötum svo dæmi séu tekin.

Ein veisla sem haldin var árið 2012 er sögð hafa farið rækilega úr böndunum því Diddy var gert að greiða 46 þúsund dollara, rúmar sex milljónir króna, vegna skemmda á húsgögnum á ónefndu hóteli. Voru rúm og sófar sögð vera löðrandi í olíu eftir veislu sem virðist hafa verið haldin þar.

Yfirvöld segjast hafa fundið yfir þúsund flöskur af barnaolíu á heimilum rapparans fyrr á árinu. Þá fundu lögreglumenn þrjú AR-15 skotvopn sem virðast hafa verið ólöglega fengin þar sem búið var að afmá skráningarnúmer þeirra.

Segir málið ekki minna á mál R. Kelly

Ákæruvaldið metur það svo að Diddy hafi verið einskonar foringi skipulagðra glæpasamtaka sem stunduðu meðal annars mansal, vinnuþrælkun, fíkniefnabrot, mannrán og mútugreiðslur svo eitthvað sé nefnt.

Sem fyrr segir er rapparinn einnig sakaður um að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína, söngkonuna Cassie Ventura fólskulegu ofbeldi meðan á sambandi þeirra stóð. Ventura kærði hann í fyrra fyrir nauðgun, líkamsárás og andlegt ofbeldi og segir hún að Diddy hafi þvingað hana til að stunda kynlíf með vændiskörlum. Er Diddy sagður hafa tekið þetta allt upp á myndband og stundað sjálfsfróun meðan á þessu stóð.

Cassie segir að fyrsta „freak-off“-orgían hafi átt sér stað nokkrum mánuðum eftir að þau byrjuðu saman en þá var hún aðeins 22 ára en hann 40 ára. Eftir eina slíka árið 2016 réðst hann á hana eins og fjallað var um á sínum tíma.

Lögmaður rapparans, Marc Agnifilo, segir að skjólstæðingur hans hafi ekki gerst sekur um mansal. Í umræddum veislum hafi fólk tekið þátt af fúsum og frjálsum vilja. „Er það mansal? Nei, ekki ef allir vilja vera þarna. Við erum engu bættari með það að ákæruvaldið mæti inn í svefnherbergið til okkar og það er það sem er að gerast hér,“ sagði hann í gær. Segir hann að ekkert sé líkt með máli Diddy og til dæmis R. Kelly. „Þetta er allt öðruvísi. Þetta var fólk sem hafði veitt samþykki sitt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Dennis Rodman með yfirlýsingu eftir að dóttir hans varpaði sprengju

Dennis Rodman með yfirlýsingu eftir að dóttir hans varpaði sprengju
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jólakort ársins frá Vilhjálmi og Katrínu

Jólakort ársins frá Vilhjálmi og Katrínu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndir af leikkonunni settu allt á hliðina og nú svarar hún tröllunum fullum hálsi – Málið vekur upp spurningar um kröfur karla til kvenna

Myndir af leikkonunni settu allt á hliðina og nú svarar hún tröllunum fullum hálsi – Málið vekur upp spurningar um kröfur karla til kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dennis Rodman fær það óþvegið frá dóttur sinni

Dennis Rodman fær það óþvegið frá dóttur sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kynlífsathöfnin sem Christina Aguilera fær ekki nóg af

Kynlífsathöfnin sem Christina Aguilera fær ekki nóg af
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrsta stefnumótið var fyrir tíu árum á Litla-Hrauni: „Ég fór þarna út með hjartað í brókinni og stjörnur í augunum“

Fyrsta stefnumótið var fyrir tíu árum á Litla-Hrauni: „Ég fór þarna út með hjartað í brókinni og stjörnur í augunum“