fbpx
Þriðjudagur 17.september 2024
Fókus

Bíógestir drógu fram kúrekadressin fyrir Johnny King

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. september 2024 19:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt stefndi í löðursveitt kúrekaball á laugardaginn þegar gestir Bíó Paradísar klæddu sig í kögurbuxurnar og settu upp hattinn til þess að fjölmenna á frumsýningu heimildarmyndar um íslenska kántrýsöngvarann Johnny King. Heimildarmyndin í leikstjórn Árna Sveinssonar, segir frá gömlum kántrýsöngvara sem er á krossgötum í lífinu. Í myndinni gerir hann upp áhugaverða fortíð sína sem er eins og myllusteinn um háls hans.

Kúreki Norðursins, sagan af Johnny King, var opnunarmynd hátíðarinnar Skjaldborg sem er hátíð íslenskra heimildamynda og IceDocs alþjóðlegrar heimildarmyndahátíðar á Akranesi. Myndin hlaut Ljóskastarann, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar, í ár.

Húsvíkingurinn Jón Oddi Víkingsson, þekktur sem Johnny King, átti skrautlegan og skemmtilegan feril sem kántrýsöngvari og var þekktur um miðjan níunda áratuginn. Síðastliðin ár hefur myndatökumaður fylgt honum við hvert fótmál en Johnny King vakti mikla athygli þegar hann birtist í kvikmynd Friðriks Þórs, Kúreka Norðursins sem kom út árið 1985.

Patrik Ontkovic og Valli Gísla festu stemninguna á mynd.

Nánar um myndina sem nú er í sýningum í Bíó Paradís.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Myndin byggir á minni eigin hjónabandskrísu“

„Myndin byggir á minni eigin hjónabandskrísu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Verða Oasis með í Super Bowl sýningunni?

Verða Oasis með í Super Bowl sýningunni?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Myndband af hetjudáð Bon Jovi: Sannfærði konu um að stökkva ekki fram af brú

Myndband af hetjudáð Bon Jovi: Sannfærði konu um að stökkva ekki fram af brú
Fókus
Fyrir 5 dögum

Æsispennandi vestfjarðakrimmi með dulrænni slagsíðu

Æsispennandi vestfjarðakrimmi með dulrænni slagsíðu