fbpx
Miðvikudagur 11.september 2024
Fókus

Dagur gat varla gengið fyrir nokkrum árum en um helgina hljóp hann hálfmaraþon – Opinberar tónlistina sem kom honum áfram

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. september 2024 11:30

Dagur með hópnum sínum. Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, hljóp hálfmaraþon um helgina. Hann segir það stóran áfanga fyrir sig í ljósi þess að hann gat varla gengið fyrir nokkrum árum vegna gigtar.

„Sjálfum mér og öðrum til nokkurrar furðu hljóp ég hálf-maraþon um helgina! Þetta var góðgerðarhlaup – Great Northern Run – sem er raunar fjölmennasta hálf-maraþon í heimi,“ segir Dagur í færslu á samfélagsmiðlum.

Hlaupið er haldið í borginni Newcastle í Bretlandi. Það var fyrst haldið árið 1981.

Dagur segist hafa látið plata sig til að hlaupa því það var fyrir gott málefni, Bergið – Headspace, með slagorð þeirra „Tölum um tilfinningar“ á bolnum. Bergið er hins vegar ekki skráð góðgerðafélag í Bretlandi og því var ekki hægt að heita á félagið í rauntíma. Dagur hvetur vini sína til að styrkja félagið beint hér.

„Ég var satt að segja ekki viss um að ég gæti þetta – en viti menn – ég bar gæfu til að fara á mínum hraða, leið vel allan tímann og kom brosandi í mark, án þess að hafa þurft að grípa til þess ráðs að ganga eða hægja á mér þessa 21 kílómetra sem hlaupið stóð,“ segir Dagur en þetta var ekki sjálfgefið. „Fyrir mér var þetta satt best að segja býsna stór áfangi. Það eru auðvitað ekki mörg ár síðan ég gat varla gengið og þurfti að styðjast við staf vetrarlangt vegna gigtarinnar. Nú hefur mér tekist að vera lyfjalaus sl. tvö ár með hjálp míns frábæra gigtarlæknis og líður framúrskarandi vel. Já, ég hef sannarlega margt til að vera þakklátur fyrir – meðal annars frábæra vini sem draga mann út í svona vitleysu!“

Þá listar Dagur tónlistarfólkið sem kom honum í gegnum hlaupið, það er greip athyglna og færði hana frá leggjum og lærum þegar á leið. Lagalisti Dags innihélt: GusGus, SYKUR, Unu Torfa, ClubDub, Inspector Spacetime, Trabant, FM Belfest, Prins Póló, Retro Stefson, Ný Dönsk, Motion Boys, Hjaltalín, Birnir, Páll Óskar, Vök, Björk, Kendrick Lamar, The Weeknd, Tame Impala, Daft Punk, Diana Ross, Sísý Eir, HAM, Fred again, Four Tet og Massive Attack.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Faðir Helga Ómars hjálpaði honum að koma út úr skápnum – „Mér fannst hann allt í einu verða frjáls“

Faðir Helga Ómars hjálpaði honum að koma út úr skápnum – „Mér fannst hann allt í einu verða frjáls“
Fókus
Í gær

Krabbameinsmeðferð Katrínar lokið – „Lífið eins og þú þekkir það getur breyst á augabragði“

Krabbameinsmeðferð Katrínar lokið – „Lífið eins og þú þekkir það getur breyst á augabragði“
Fókus
Í gær

Brast í grát þegar hún greindi aðdáendum frá því hvernig gestir á ofurhetju-ráðstefnu gengu yfir strikið – „Þetta er ekki í lagi“

Brast í grát þegar hún greindi aðdáendum frá því hvernig gestir á ofurhetju-ráðstefnu gengu yfir strikið – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Stjarnan nær óþekkjanleg á rauða dreglinum – Svona missti hann 25 kg

Stjarnan nær óþekkjanleg á rauða dreglinum – Svona missti hann 25 kg
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ástarsvindlarar og eltihrellar

Ástarsvindlarar og eltihrellar
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ekki hefði mig grunað fyrir nokkrum árum í miðri og langri ófrjósemisbaráttu að þetta yrði staðan í dag“

„Ekki hefði mig grunað fyrir nokkrum árum í miðri og langri ófrjósemisbaráttu að þetta yrði staðan í dag“