Ævar Örn Jósepsson ræðir við glæpasagnahöfundana Joachim B. Schmidt og Satu Rämö á Borgarbókasafninu í Kringlunni fimmtudaginn 12. september kl. 17:00. Joachim og Satu settust bæði að á Íslandi og hafa slegið í gegn með glæpasögum sínum sem gerast hér á landi, á Raufarhöfn og Ísafirði. Ævar sem ruddi sjálfur brautina í íslenskum glæpasagnaskrifum yfirheyrir þau um hvers vegna þau völdu Ísland, bæði sem heimili og sögusvið.
Joachim B. Schmidt er fæddur í Sviss, ólst upp í Ölpunum og hefur búið á Íslandi síðan 2007. Fyrsta skáldsagan hans kom út árið 2013 en hann hefur slegið í gegn á Íslandi með bókum sínum um Kalmann Óðinsson, sjálfskipaðan lögreglustjóra á Raufarhöfn. Fyrsta bókin komst á metsölulista Der Spiegel og vann til fjölda verðlauna. Hún hlaut meðal annars Ísnálina fyrir best þýddu glæpasöguna í þýðingu Bjarna Jónssonar.
Satu Rämö flutti til Íslands frá Finnlandi sem hagfræðinemi en lagði í staðinn fyrir sig íslenska menningu, bókmenntir og þjóðsögur. Hún hefur skrifað fjölda bóka um Ísland fyrir Finnlandsmarkað en sló rækilega í gegn með fyrstu glæpasögunni sinni um lögreglukonuna Hildi sem fór beint í toppsætið þar í landi. Fyrsta bókin í þríleiknum kom út á íslensku í síðasta mánuði og hefur verið eða mun verða þýdd á fjölda annarra tungumála.
Ævar Örn Jósepsson hefur bæði skrifað og þýtt glæpasögur sjálfur, samið krossgátur og flutt fréttir ásamt því að gegna formennsku í hinu íslenska glæpafélagi sem stendur á bakvið glæpafárið í samstarfi við Borgarbókasafnið.