En nú er hann kominn til baka og er kominn til að vera. Hann fagnaði endurkomu sinni á samfélagsmiðla með myndbandi á Instagram.
„Úff… 376 dagar án ykkar. Oj bara. Nú kippum við þessu aftur í liðinn undir eins. Það er margt búið að ske, fjandinn hafi það. Ég held ég sé búinn að setja fótinn í hvert einasta land í Evrópu og það er búið að vera luxuriously æðislegt. Eigum við ekki að deila smá klippu úr því,“ segir Kleini í Story á Instagram og birtir síðan nokkrar myndir úr ferðalögum þeirra síðastliðið ár.
Skoðaðu myndbandið hér.
DV sló þráðinn til Kleina sem sagði að það væri spennandi að vera kominn aftur.
„Það er spennandi að vera kominn aftur, og miðillinn verður nýttur til að leyfa fólki að fylgjast með fjölbreyttum verkefnum sem eftir er að ljúka og daglegu lífi sem því fylgir,“ segir hann.
„Ég hef ekki vanið mig á að einblína á eitt ákveðið viðfangsefni. Þess í stað mun ég deila öllu frá lífsstíl, ást, áhugamálum, verkefnum, árangurs og svo margt fleira. Eftir að hafa verið lengi í burtu mun ég núna bjóða áhugasömum að fylgjast með öllu því sem mitt daglega líf hefur upp á að bjóða“
Kleini ræddi nánar um pásuna og ávinninga hennar í Fókus, spjallþætti DV, ásamt unnustu sinni, Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur í vor.
Fylgstu með Kleina á Instagram, hann er einnig á TikTok.
Horfðu á Fókus með Hafdísi og Kleina hér, þú getur einnig hlustað á Spotify.