fbpx
Föstudagur 30.ágúst 2024
Fókus

Skilin eftir 21 ár – „Þetta var mjög vel heppnað hjónaband að okkar mati“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 30. ágúst 2024 11:30

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Leah Remini og eiginmaður hennar, Angelo Pagán, eru að skilja.

„Jæja, hér erum við. Eftir 28 ára samband og 21 árs hjónaband þá höfum við ákveðið að skilja,“ kom fram í yfirlýsingu frá hjónunum á Instagram í gær.

„Við tókum þessa ákvörðun eftir mikla umhugsun, eins erfitt og það er að skilja þá lítum við björtum augum fram á veginn því við vitum hvað er það besta í stöðunni fyrir okkur.“

Þau sögðu að sambandið þeirra væri enn sterkt, bara öðruvísi.

„Við erum stolt af því hvernig við höfum dílað við þetta. Já, við erum sorgmædd og við þurfum að finna út úr því hvernig við höldum áfram í breyttan veruleika. Saman en samt í sundur.

En hér er málið, við höfum verið bestu vinir í svo mörg ár. Við erum ennþá saman um hátíðarnar, horfum á uppáhalds þættina okkar saman og eyðum tíma saman sem fjölskylda. Þannig, stóra spurningin er: Af hverju?

Einfalda svarið er: Við erum búin að breytast, eins og fólk gerir, og við vorum orðin vön því að leika hlutverk sem pössuðu ekki lengur við okkur.

Eftir mikla umhugsun ákváðum við að taka þetta skref, sem sýnir hver við erum í dag. Tengingin á milli okkar er enn sterk, hún hefur bara breyst. Þetta var mjög vel heppnað hjónaband að okkar mati. Og núna hlökkum við til að skapa fleiri minningar, bara á öðruvísi hátt.“

Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Leah Remini (@leahremini)

Remini og Pagán eiga saman dóttur, Sofiu Bellu, sem er tvítug. Pagán á þrjá syni úr fyrra sambandi og tvö barnabörn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Gerður í Blush malar gull – „Ótrúlega sátt með þetta allt saman“

Gerður í Blush malar gull – „Ótrúlega sátt með þetta allt saman“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjuggu saman í húsvagni í byrjun sambandsins

Bjuggu saman í húsvagni í byrjun sambandsins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Var kölluð lygari en fær nú að segja sögu sína – Rænt og átti að vera seld til hæstbjóðanda

Var kölluð lygari en fær nú að segja sögu sína – Rænt og átti að vera seld til hæstbjóðanda
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snerting fær Gullna þumalinn

Snerting fær Gullna þumalinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dísa íhugaði að flýja heimili sitt á laugardag – „Þetta er eins og að vera á skemmtistað í helvíti“

Dísa íhugaði að flýja heimili sitt á laugardag – „Þetta er eins og að vera á skemmtistað í helvíti“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vinátta Brynju og Elsu lætur engan ósnortinn – „Elska þig. Svo er þetta líka trú vinátta“

Vinátta Brynju og Elsu lætur engan ósnortinn – „Elska þig. Svo er þetta líka trú vinátta“