fbpx
Miðvikudagur 28.ágúst 2024
Fókus

Bjuggu saman í húsvagni í byrjun sambandsins

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 28. ágúst 2024 10:29

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kúrekinn Adan Banuelos fer fögrum orðum um kærustu sína, ofurfyrirsætuna Bellu Hadid, og greinir frá því að í byrjun sambands þeirra hafi þau búið saman í húsvagni.

Adan Banuelos, 35 ára, var gestur í hlaðvarpsþættinum Along For the Ride og opnaði sig um samband hans og Hadid, 27 ára.

Þau kynntust fyrir einu og hálfu ári síðan og deildu sameiginlegri ástríðu fyrir hestum og hestaíþróttum.

Hún flutti síðan inn til hans en á þeim tíma bjó hann í húsvagni sökum starfsins, en Banuelos er margverðlaunaður hesta- og tamningamaður. Hadid hefur iðkað hestamennsku frá barnsaldri.

bella hadid
Þau hafa bæði dálæti af hestum. Mynd/Instagram

„Hún flutti inn í húsvagninn og var sátt með það. Það var mjög töff,“ sagði hann.

„Mér hefur alltaf fundist húsvagninn vera lítill, en þegar einhver, sem þú nýtur þess að verja tíma með, flytur inn þá verður húsvagninn að höll.“

Kúrekinn sagði að honum hafi þótt mikilvægt að fyrirsætan myndi átta sig strax á því hvernig lífsstíl hann lifir.

2022 Fifth Wheels | RV Lifestyle Magazine
Klassískur fimm hjóla húsvagn.

„Það var kúl, því ég vildi að þetta yrði hluti af okkar sambandi. Þú veist, þegar þú byrjar að bera tilfinningar til einhvers og hugsar: „Vá, kannski er þetta til æviloka,“ og þú veist að hún er svona einföld og að efnislegir hlutir eru ekki mikilvægir, eða ekki það mikilvægasta,“ sagði hann.

Banuelos sagði að Hadid hafi passað fullkomlega inn í líf hans. Hann sagði að á keppnisdögum hafi hún vaknað eldsnemma til að koma með morgunmat handa öllum og að hún hafi alltaf verið fremst í flokki til að hvetja hann áfram.

the american performance horseman by teton ridge
Banuelos sagði Hadid vera hans bestu klappstýru. Mynd/Getty Images

„Hún var til staðar, svo jákvæð og hress, hún sýndi öllum svo mikla hlýju og hjálpaði til með hestana og alls konar þannig, það var magnað,“ sagði hann.

Kúrekinn sagði að þau búa ekki lengur í húsvagninum, en Hadid keypti eign í Texas. „Ég er líka að byggja hús,“ sagði hann.

Hamingjusamur og heppinn

Banuelos fór fögrum orðum um Hadid í viðtalinu og sagðist sjá framtíð með henni.

„Ég á erfitt með að koma því í orð hversu hamingjusamur ég er, ég er svo heppinn,“ sagði hann.

„Hún er yndislegasta manneskja sem ég hef hitt, með stærsta hjartað.“

the american performance horseman by teton ridge
Mynd/Getty Images
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Atvinnulaus fýlupúki

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Maðurinn sem segist vita sannleikann um Amelia Earhart en enginn trúir honum

Maðurinn sem segist vita sannleikann um Amelia Earhart en enginn trúir honum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Illuga er misboðið vegna þróunar Menningarnætur

Illuga er misboðið vegna þróunar Menningarnætur