fbpx
Þriðjudagur 27.ágúst 2024
Fókus

Ótrúleg breyting á stórleikaranum

Fókus
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 12:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarar þurfa oft á tíðum að leggja á sig gríðarlega vinnu fyrir þau hlutverk sem þeir taka að sér. Óhætt er að segja að sænski stórleikarinn Bill Skarsgård hafi tekið sig á í mataræðinu og verið duglegur að mæta í ræktina fyrir hlutverk sitt í myndinni The Crow.

Vinstra megin á myndinni hér að ofan má sjá Bill í hlutverki sínu í þáttunum Clark sem komu út á Netflix árið 2022 og til hægri er mynd af honum í The Crow sem frumsýnd var á dögunum.

Myndin segir frá kærustuparinu Eric og Shelly sem eru myrt á hrottafenginn hátt og leit Erics að hefndum eftir dauða sinn í hinu jarðneska lífi.

Í samtali við Variety segir Skarsgård, sem líklega er þekktastur fyrir að leika trúðinn Pennywise í IT-myndunum, segir hann að breytt mataræði og mikil viðvera í ræktinni hafi verið lykillinn að breytingunni.

„Ég var búinn að vera nokkuð duglegur í ræktinni en ég og einkaþjálfarinn minn ákváðum að þyngja mig aðeins, en samt án þess að gera mig of stóran,“ sagði hann og bætti við að hann hafi borðað mikið af prótíni og stundað lyftingarnar grimmt í ræktinni.

Leikstjóri myndarinnar, Rupert Sanders, segir að mataræði leikarans hafi að miklu leyti samanstaðið af „beef tartare“ og hráum eggjum. Þá hafi leikarinn haldið sig frá sykri, áfengi og öðrum óhöllum matvörum meðan að á tökum stóð. Þessi vinna virðist hafa skilað sér svo um munar eins og sjá má.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – „Ég er svo heit að þú tókst ekki einu sinni eftir því að það vantar í mig tönn“

Vikan á Instagram – „Ég er svo heit að þú tókst ekki einu sinni eftir því að það vantar í mig tönn“
Fókus
Í gær

Sunneva og Benedikt ástfangin í fimm ár – Birti mynd úr fyrsta ferðalaginu þeirra saman

Sunneva og Benedikt ástfangin í fimm ár – Birti mynd úr fyrsta ferðalaginu þeirra saman
Fókus
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem segist vita sannleikann um Amelia Earhart en enginn trúir honum

Maðurinn sem segist vita sannleikann um Amelia Earhart en enginn trúir honum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Illuga er misboðið vegna þróunar Menningarnætur

Illuga er misboðið vegna þróunar Menningarnætur