Sérstök afmælissýning verður á kvikmyndinni Hrafninn flýgur í tilefni af 40 ára afmæli myndarinnar á kvikmyndahátíðinni RIFF í október. Leikstjórinn Hrafn Gunnlaugsson segir myndina hafa verið gríðarlegt verkefni á sínum tíma og að hún eigi enn þá aðdáendaklúbba víða um heim.
„Hún er lífseig, þessi mynd mín,“ segir Hrafn Gunnlaugsson um Hrafninn flýgur, sem var sú fyrsta í svokölluðum víkingaþríleik Hrafns. En á eftir fylgdu Í skugga hrafnsins og Hvíti víkingurinn. „Ætli megi ekki segja að hún sé tímalaus.“
Afmælissýningin verður þann 4. október næstkomandi í sal 1 í Háskólabíói. Þungarokkssveitin Sólstafir mun flytja eigin tónsmíðar á kraftmikinn hátt við myndina. En það sama gerðu þeir árið 2014 þegar haldið var upp á 30 ára afmæli myndarinnar.
Tugþúsundir sáu Hrafninn flýgur þegar hún var sýnd í kvikmyndahúsum á sínum tíma. Myndin var íslensk og sænsk framleiðsla. Hún fjallar um írskan mann sem kemur til Íslands til að hefna sín á norrænum víkingum sem drápu foreldra hans og numdu systur hans á brott í þrældóm. Myndin þótti svipa mjög til samúræja mynda hins japanska Akira Kurosawa og spagettívestra hins ítalska Sergio Leone.
„Þetta var ofboðsleg framkvæmd,“ segir Hrafn. „Fyrir mig var þetta stanslaus vinna í þrjú ár.”
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Riff hefst 26. september og lýkur 6. október. Meginvettvangurinn verður Háskólabíó. Hægt er að nálgast miða á tónleikasýningu Hrafnsins flýgur á riff.is og sjá alla dagskrá hátíðarinnar.
„Það eru enn starfandi aðdáendaklúbbar myndarinnar í útlöndum,“ segir Hrafn. „Mér var einu sinni boðið til eins þeirra, sem er í Múrmansk, af öllum kimum heimsins. Ég þáði það nú, og hafði gaman af, þótt ekki væri sakir annars en að formaður klúbbsins reyndist vera fangelsisstjóri borgarinnar og varaformaðurinn sjálfur lögreglustjórinn í Múrmansk.“