Bakarameistarinn Jóhannes Felixson, Jói Fel, er orðinn afi.
Dóttir Jóhannesar, Rebekka Rún, og sambýlismaður hennar, Ásgeir Kári Ásgeirsson eignuðust sitt fyrsta barn, dóttur, 17. ágúst síðastliðinn.
„Hvað er betra enn að eldast og fá fyrsta afabarnið í fangið. Ótrúlegt hvað svo lítið yndi getur vökvað mann um augun og glatt mann mikið. Það sem ég og Eva mín eigum eftir að dekra við þessa í Hveragerði næstu árin,“ segir Jói í færslu á samfélagsmiðlum alsæll með nýja hlutverkið, afahlutverkið.
„AFI❤️ Og svo varð maður alltíeinu afi. Þvílík gleði og ást að fá að halda á afa stelpunni minni. Fædd 17 ágúst.“
View this post on Instagram