Líklega er hvergi meiri launamunur innan nokkurrar hljómsveitar og hjá Dimmu, rokksveitinni rómuðu. Samkvæmt álagningarskrá Ríkisskattstjóra var trommarinn með ríflega þrefaldar mánaðartekjur alla hinna meðlima til samans.
Ekki má líta á það svo að tekjum af plötusölu og tónleikahaldi sé svona misskipt hjá Dimmu, sem var stofnuð árið 2004. En sveitin hefur gefið út sex stúdíóplötur og tvær tónleikaplötur.
Skýringuna er vitaskuld að finna í að trommarinn, Birgir Jónsson, stýrði flugfélaginu Play á síðasta ári. Var hann með 3.823.444 krónur í mánaðartekjur samkvæmt álagningarskrá. Birgir hætti í hljómsveitinni árið 2018 en gekk aftur til liðs við hana í mars síðastliðnum.
Næst launahæsti Dimmu-meðlimurinn í fyrra var Silli Geirdal, bassaleikari, með 601.614 krónur í mánaðarlaun. Þá kom bróðir hans gítarleikarinn Ingólfur Geirdal með 455.152 krónur og að lokum söngvarinn Stefán Jakobsson með 206.357 krónur í mánaðartekjur. Samanlagðar tekjur þeirra þriggja voru því 1.263.123 krónur, eða innan við þriðjungur af tekjum Birgis.
Þessar tölur frá Ríkisskattstjóra tæta svo sannarlega í sundur þá mýtu að söngvarar og gítarleikarar fái mestu frægðina, framann og ríkidæmið í rokkinu.