fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Fókus

Tekjudagar DV: Spurningum um laun Gústa B loksins svarað – Tekjur Prettyboitjokko lækkuðu milli ára

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 19. ágúst 2024 09:38

Patrik Snær Atlason og Gústi B.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í apríl veltu einhverjir fyrir sér tekjum útvarpsmannsins Ágústs Beinteins Árnasonar, betur þekktum sem Gústi B, þegar hann keypti sér nýja glæsibifreið. Um var að ræða Teslu sem kostar um sjö til níu milljónir.

Sjá einnig: Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Nú geta þessir einstaklingar svalað forvitninni þar sem álagningaskrá Skattsins hefur verið lögð fram eins og hefð er fyrir á hverju ári.

Gústi B var með 691.192 kr. á mánuði miðað við greitt útsvar 2023.

Hann var aðeins launalægri en vinur sinn og fyrrverandi meðþáttastjórnandi, Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Prettyboitjokko.

Patrik var með 729.271 kr. á mánuði að meðaltali í laun í fyrra.

Lækkaði milli ára

Súkkulaðidrengurinn lækkaði í launum á milli ára en hann var með 783.582 kr. í mánaðarlaun að meðaltali árið 2022. Hann var á þeim tíma nýr í senunni en talsvert tekjuhærri en margir aðrir vinsælir tónlistarmenn. En tekjurnar árið 2022 komu ekki frá tónlistarbransanum þar sem hann gaf ekki út sitt fyrsta lag fyrr en 2023. Fyrir það vann hann hjá fjölskyldufyrirtækinu Góu, en afi hans er Helgi Vilhjálmsson, betur þekktur sem Helgi í Góu.

Veislan sem kláraðist

Gústi B og Patrik eru ekki aðeins vinir heldur einnig samstarfsfélagar. Gústi B er umboðsmaður Patriks og sáu þeir um útvarpsþáttinn Veislan á FM957. Hins vegar lauk því ferðalagi fyrir einni og hálfri viku. Ákveðið var að taka þáttinn úr loftinu og þó Þórdís Valsdóttir, forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar, hafi ekki viljað deila ástæðunni, þá var þættinum slaufað í kjölfar umdeildrar athugasemdar Patriks í þættinum um botnlaus tjöld á Þjóðhátíð.

Sjá einnig: Sótt að Patrik eftir meintan nauðgunarbrandara á FM957 – „Ummælin dæma sig sjálf, þau eru ógeðsleg“

Gústi B er nú að leita sér að nýrri vinnu og spurði hvort einhver væri að ráða í færslu á Instagram. Þátturinn var í loftinu í tæplega þrjú ár.

Sjá einnig: Fagna endalokum Veislunnar – „Neiii sko, eru afleiðingar af slæmri hegðun – hverjum hefði dottið það í hug“

Um er að ræða útsvar hvers og eins og eru mánaðarlaun reiknuð út frá því. Upphæðirnar þurfa því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi og til að mynda er sleppt skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Gögnin eru opinber fyrir fjölmiðla hjá Skattinum þessa dagana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikarinn biður dóttur sína að fyrirgefa sér – „Mér líður hryllilega og ég vil að þú vitir að ég tók engu sem þú sagðir persónulega“ 

Leikarinn biður dóttur sína að fyrirgefa sér – „Mér líður hryllilega og ég vil að þú vitir að ég tók engu sem þú sagðir persónulega“ 
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hefur ekki talað við fyrrum vin sinn, Davíð Oddsson, um langt skeið – „Ég held að hann hafi farið í fýlu út í mig af því að ég var ekki sammála honum“

Hefur ekki talað við fyrrum vin sinn, Davíð Oddsson, um langt skeið – „Ég held að hann hafi farið í fýlu út í mig af því að ég var ekki sammála honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sóldís Vala er Ungfrú Ísland 2024

Sóldís Vala er Ungfrú Ísland 2024
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svona geturðu séð hvort að kærastinn þinn sé að skoða aðrar konur á Instagram

Svona geturðu séð hvort að kærastinn þinn sé að skoða aðrar konur á Instagram
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svona varð brúðkaupsterta Páll Óskars í Gleðigöngunni til

Svona varð brúðkaupsterta Páll Óskars í Gleðigöngunni til
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jói Fel trúlofaði sig á Miami – „Allt eins og það á að vera“

Jói Fel trúlofaði sig á Miami – „Allt eins og það á að vera“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halla myndi velja fiskibollur í brúnni sem eilífðarmat, leiðist þrif og hreyfingin er Akkilesarhæll

Halla myndi velja fiskibollur í brúnni sem eilífðarmat, leiðist þrif og hreyfingin er Akkilesarhæll