fbpx
Sunnudagur 18.ágúst 2024
Fókus

Gerði þetta á fyrsta stefnumóti og hann stóð upp og fór

Fókus
Sunnudaginn 18. ágúst 2024 09:00

Vanusa Freitas.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fitness áhrifavaldurinn Vanusa Freitas, 32 ára, var spennt að fara á stefnumót með karlmanni. Þetta var fyrsta stefnumótið þeirra og bauð hann henni á fína veitingastaðinn The Shard í London.

Freitas fylgir mjög ströngu matarprógrammi og vildi ekki svindla á því, þannig hún ákvað að taka með sér heimagert nesti.

Það féll ekki vel í kramið hjá manninum.

„Ég vildi fylgja matarplaninu mínu þannig ég ákvað að taka bara mat með mér. Ég hélt að þetta væri góð hugmynd en hann var ekki sammála,“ segir hún í samtali við NeedToKnow.

Manninum þótti fráhrindandi hversu upptekin Freitas var af eigin mataræði að hann fór.

Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vanusa 🦋 (@euvanusafreitas)

;

„Við vorum á miðju stefnumóti og hann stóð upp og fór. Ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera,“ segir hún.

„Sumir skilja ekki hversu mikilvægt það er fyrir mig að fylgja prógramminu. Stundum þarf ég að vera bara ströng og hundrað prósent þegar kemur að mataræðinu. Eins og þegar ég er búin að skuldbinda mig í einhver verkefni, eins og myndatökur, þá verð ég aðeins öfgakenndari.

En eftir atvikið á veitingastaðnum áttaði Freitas sig á því að hún þyrfti að slaka aðeins á.

„Núna lifi ég heilbrigðu lífi og alvöru lífi. Ég geri allt, en ég vel mér hreyfingu sem mér finnst skemmtileg.“

Freitas og maðurinn gáfu hvort öðru annað tækifæri. „Ég baðst afsökunar og við fórum á annað stefnumót,“ segir hún.

Þau hafa farið á nokkur stefnumót síðan þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Boxskipulagið varð Dísu Reykjavíkurdóttur ofviða – „Endaði bara eins og kaosið sem líf mitt er“

Boxskipulagið varð Dísu Reykjavíkurdóttur ofviða – „Endaði bara eins og kaosið sem líf mitt er“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Karen“ trompaðist þegar hún sá unga konu í stuttu pilsi og ákvað að grípa til sinna ráða – Sat svo sjálf eftir með sárt ennið

„Karen“ trompaðist þegar hún sá unga konu í stuttu pilsi og ákvað að grípa til sinna ráða – Sat svo sjálf eftir með sárt ennið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona varð brúðkaupsterta Páll Óskars í Gleðigöngunni til

Svona varð brúðkaupsterta Páll Óskars í Gleðigöngunni til
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ljósbrot í forvali Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna

Ljósbrot í forvali Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elle King um hvernig það var að alast upp með Rob Schneider sem föður – „Hann sendi mig í megrunarsumarbúðir“

Elle King um hvernig það var að alast upp með Rob Schneider sem föður – „Hann sendi mig í megrunarsumarbúðir“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beggi Ólafs segir að lífaldur hans sé 18 ár

Beggi Ólafs segir að lífaldur hans sé 18 ár