fbpx
Sunnudagur 11.ágúst 2024
Fókus

Frægu vinirnir hafi snúið baki við hertogahjónunum

Fókus
Sunnudaginn 11. ágúst 2024 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hertogahjónin Harry Bretaprins og Meghan Markle áttu áður marga góða vini í Hollywood. En nú er staðan önnur en miðillinn The Express segir að margir vinir hafi snúið baki við hjónunum undanfarið.

Almannatengillinn Ronn Torossian segir við miðilinn: „Það er augljóst að þó nokkrir af þekktum vinum Meghan Markle hafa kælt vinskapinn síðustu árin“

Nýlega hafi Meghan farið að stað með nýja lífstílsmerkið sitt, American Riviera Orchard. Bjuggust margir við því að samfélagsmiðlar myndu fyllast af þekktum vinum hjónanna sem væru að kynna vörurnar frá merkinu. Stjönur á borð við Oprah Winfrey, Tyler Perry og George og Amal Clooney. Ekkert þeirra hafi þó tjáð sig um nýju lúxus sultuna sem American Riviera Orchard er að selja.

Torossian segir þetta sterka vísbendingu um að þessar stjörnur kæri sig ekki lengur um að tengjast hertogahjónunum. Mögulega sé það vegna þess að þessar stjörnur vilja ekki falla í ónáð hjá bresku konungsfjölskyldunni, en þar njóta hertogahjónin lítilla vinsælda um þessar mundir eftir að hafa ítrekað opinberað einkamálefni fjölskyldunnar.

„Þetta snýst ekki endilega um Harry og Meghan sjálf heldur þessa flóknu og stuðandi umræðu sem fylgir þeim þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þeirra til að stíga frá sviðsljósinu.“

Árið 2020 tilkynntu hertogahjónin að þau ætluðu að segja konunglegum skyldum sínum lausum og flytja til Bandaríkjanna. Þau. hefðu fengið nóg af ágangi fjölmiðla og vildu fá að lifa lífi sínu í friði.

Þessi yfirlýsing þegar hefur síðan verið höfð að háði og spotti þar sem hertogahjónin hafa farið í stór viðtöl, gert heimildaþætti um sig og samband þeirra, gefið út hlaðvarp, farið í ferðir og auglýst opinberlega og áfram mætti telja.

Grínþættirnir South Park gerðu eftirminnilega grín að þessu fyrir nokkru síðan þar sem hjónin voru sýnd troða sér í sviðsljósið hvar se þau gátu, bara til að heimta frið.

Meðal þekkta vina hjónanna, umfram þá sem þegar hafa verið nefndir, eru leikkonan Priyanka Chopra, íþróttakonan Serena Williams, tónlistarmaðurinn Elton John, spjallþáttadrottningin Ellen DeGeneres og Beckham-hjónin. Svo virðist sem að öll þessi vinátta heyri nú sögunni til og í júní greindi fyrrverandi bryti Díönu prinsessu, móður Harry, frá því að hertogahjónin hafi boðið þessum vinum sínum á viðburði en fengið pent nei til baka.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Ræddu viðhorf Dana til Íslendinga – „Danir eru Flanders og Íslendingar eru Hómer“

Ræddu viðhorf Dana til Íslendinga – „Danir eru Flanders og Íslendingar eru Hómer“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aðdáendur reiðir eftir að Netflix fjarlægði umdeildan þátt í vinsælli seríu

Aðdáendur reiðir eftir að Netflix fjarlægði umdeildan þátt í vinsælli seríu