fbpx
Föstudagur 05.júlí 2024
Fókus

Eistun tryggð fyrir milljarð

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 3. júlí 2024 12:30

Nich Cannon Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn og sjónvarpskynnirinn Nick Cannon er búinn að tryggja eistun á sér fyrir tíu millj­ón­ir ­dala eða rúm­lega einn milljarð ís­lenskra króna. Cannon sem er 43 ára á tólf börn á aldrinum 2-13 ára, með sex konum.

„Ég varð að tryggja verðmætustu eignir mínar,“ segir Cannon hlæjandi í viðtali við Entertainment Tonight. 

„Vegna þess að þú heyrir um allt þetta fræga fólk sem tryggir fæturna á sér og ég hugsaði: „Hey, jæja, ég verð að tryggja verðmætasta líkamshlutann minn.“

Á meðal þeirra sem það hafa gert er söngkonan Mariah Carey, sem er einmitt fyrsta barnsmóðir og fyrrum eiginkona Cannon, en þau eiga saman tvíbura sem eru fæddir árið 2011.

Carey er með fótleggina tryggða fyrir eina millj­ón ­dala eða tæp­lega 140 millj­ón­ir ís­lenskra króna, og einnig lét hún tryggja raddböndin fyrir sömu upphæð.

Þrátt fyrir að eistun séu nú tryggð gaf Cannon ekkert upp með hvort fleiri börn séu á leiðinni eða fyrirhuguð. 

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Bre Tiesi (@bre_tiesi)

Viðtalið var tekið í tveggja ára afmælisveislu sonarins Legendary sem Cannon á með núverandi kærustu sinni Bre Tiesi. Hann á þrettán ára tvíburana Monroe and Moroccan með Mariah Carey, Golden Sagon, sjö ára, Powerful Queen, þriggja ára, og Rise Messiah, eins árs, með Brittany Bell, tvíburana Zion Mixolydian og Zillion Heir, þriggja ára, og Beautiful Zeppelin, eins árs, með Abby De La Rosa, Onyx Ice Cole, eins árs, með LaNisha Cole og Halo, eins árs, með Alyssa Scott.

Zen, sonur Cannon og Scott lést úr krabbameini aðeins fimm mánaða gamall árið 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Simmi Vill opinberar loksins kærustuna

Simmi Vill opinberar loksins kærustuna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Var að taka upp efni fyrir OnlyFans í Reynisfjöru þegar hópur ferðamanna kom að henni

Var að taka upp efni fyrir OnlyFans í Reynisfjöru þegar hópur ferðamanna kom að henni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Eva var send heim af bráðamóttökunni með laxerolíu – „Það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein“

Eva var send heim af bráðamóttökunni með laxerolíu – „Það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einföld leið til að sjá hvort einhver sé undir eða yfir þrítugu

Einföld leið til að sjá hvort einhver sé undir eða yfir þrítugu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Eiginkona Kanye sökuð um að senda gróft klám á ólögráða starfsmenn í sláandi kærumáli – Ásakanir um kynþáttaníð, þrælahald og eitraða menningu

Eiginkona Kanye sökuð um að senda gróft klám á ólögráða starfsmenn í sláandi kærumáli – Ásakanir um kynþáttaníð, þrælahald og eitraða menningu