fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fókus

Sorglega ástæðan fyrir því að þessar myndir af stjörnunni eru að vekja athygli

Fókus
Föstudaginn 26. júlí 2024 16:29

Camila Cabello. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndir af söngkonunni Camilu Cabello hafa verið að fara eins og eldur í sinu um netheima og ástæðan er sorgleg.

Cabello, 27 ára, var mynduð á leiðinni í ræktina. Hún var klædd í stuttbuxur, síðerma bol og með heyrnartól.

Hún var með hárið í úfnum snúð og ómáluð, hún leit út eins og hver önnur kona á leiðinni í ræktina.

Vinsæl síða á X, áður Twitter, birti myndirnar og er óhætt að segja að viðbrögð netverja hafi verið hreint út sagt fáránleg. Þar var söngkonan harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki „gert sig til“ fyrir ræktina, fyrir að vera ómáluð og var sögð þurfa hárbursta að halda.

Sem betur fer komu margir söngkonunni til varnar og hefur gagnrýnin hrint af stað umræðu um konur í sviðsljósinu. Það er eins og þær geti ekki gert neitt rétt. Annað hvort eru þær „of fullkomnar og uppgerðar“ og eru að viðhalda óraunhæfum fegurðarstöðlum eða þær eru ekki nógu glæsilegar og „of venjulegar“.

Söngkonan virðist ekkert láta þetta á sig fá og hefur verið dugleg að birta myndir og myndbönd af sér í ræktinni að taka vel á því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Anna Lilja og Gestur nýtt ofurpar

Anna Lilja og Gestur nýtt ofurpar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tjáir sig um neikvæðar athugasemdir um farðalausa Pamelu

Tjáir sig um neikvæðar athugasemdir um farðalausa Pamelu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum