fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Bianca Censori gekk skrefinu lengra og er hætt að hylja geirvörturnar

Fókus
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 10:27

Kanye West og Bianca Censori. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralski arkitektinn Bianca Censori, sem er hvað þekktust fyrir að vera eiginkona rapparans Kanye West, hefur gengið skrefinu lengra í fatavali sínu, sem vekur venjulega mikla athygli fyrir að vera mjög djarft.

Nú virðist hún vera hætt að hylja geirvörturnar og hefur undanfarna viku sést nokkrum sinnum ganga um í mjög þunnum gegnsæjum bol og engu undir.

Það er þó ekkert nýtt fyrir Biöncu að klæðast gegnsæjum flíkum en hingað til hafa þær verið aðeins þykkari, eins og regnkápan fræga og skikkjan sem skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið.

Virðist elska að hneyksla

Það er ekkert nýtt fyrir ástralska arkitektinn að hneyksla. Í lok febrúar mætti hún buxnalaus á tískusýningu og fyrr í febrúar mætti hún nánast nakin í Super Bowl partý.

Sjá einnig: Bianca Censori buxnalaus vekur athygli – Svona klæðir hún sig í kringum börn Kanye West

Sjá einnig: Foreldrar Biöncu í uppnámi og óttast að Kanye West hafi fullkomna stjórn á henni

Fatastíllinn tekið miklum breytingum

Bianca er ástralskur arkitekt og byrjaði að starfa fyrir fyrirtæki Kanye, Yeezy, árið 2020. Þau hafa verið saman síðan byrjun árs 2023 og eru sögð hafa gifst við leynilega athöfn um miðjan janúar.

Í september sögðust vinkonur hennar hafa miklar áhyggjur af henni og að Kanye væri að „reyna að breyta henni í róttækari útgáfu af fyrrverandi eiginkonu hans, Kim Kardashian.“

Sjá einnig: Vinkonur eiginkonu Kanye West hafa miklar áhyggjur af hegðun hennar – „Hún er ekki svona“

Fatastíll og útlit hennar hefur tekið rosalegum breytingum eftir að hún kynntist rapparanum en það er þekkt að Kanye hafi áhrif á klæðaburð eiginkvenna sinna og kærasta.

Í fyrrasumar voru Bianca og Kanye á ferð um Ítalíu og vakti klæðaburður hennar mikla athygli og talsverða reiði. Fjölmargir kölluðu eftir því að Bianca yrði handtekin fyrir að særa blygðunarsemi en hún klæddist litlu öðru en gegnsæjum sokkabuxum og litlum toppum. Eitt kvöldið gekk hún um með púða í stað þess að vera í bol.

Þau voru einnig sett í lífstíðarbann eftir ósæmilegt atvik á bát.

Sjá einnig: Heldur áfram að hneyksla á Ítalíu – Svona var fatastíllinn áður en hún giftist Kanye

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fjármálaráðgjafi segir að þetta eigi að gera til að tryggja fjárhagslegt öryggi á ferðalagi – Ókeypis þráðlaust net varasamt

Fjármálaráðgjafi segir að þetta eigi að gera til að tryggja fjárhagslegt öryggi á ferðalagi – Ókeypis þráðlaust net varasamt
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tanja Ýr á von á barni

Tanja Ýr á von á barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Síðasta mynd Simmons og færslan sem hann útbjó fyrir andlátið

Síðasta mynd Simmons og færslan sem hann útbjó fyrir andlátið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heimsþekkt danshjón á Íslandi

Heimsþekkt danshjón á Íslandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um
Fókus
Fyrir 4 dögum

Miðvesturríkjamamman sem elskar Ísland

Miðvesturríkjamamman sem elskar Ísland
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“