fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fókus

Mættu búningaklæddar í anda Deadpool & Wolverine

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 23. júlí 2024 08:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinkonurnar Blake Lively og Gigi Hadid tóku búningaþemað alla leið og mættu búningaklæddar í þema Deadpool & Wolverine á frumsýningu myndarinnar í New York á mánudag.

Lively var í rauðum heilgalla með svörtum blúnduskreytingum frá Atelier Versace, en eins og aðdáendur vita þá klæðist aðalpersónan rauðum heilgalla. Eiginmaður Lively, Ryan Reynolds, bregður sér nú í gallann í fjórða sinn. 

Hælar, eyrnalokkar og svört taska, sem líkist kúlu í keðju, toppaði svo útlitið.

Hadid heiðraði hina aðalpersónuna, Wolverine, sem leikinn er  af Hugh Jackman. Hún klæddist gulum topp og pilsi frá Miu Miu. Fylgihlutir voru armbönd frá Alexis Bittar, gyllt hálsmen, svartir hælar og gul handtaska með Deadpool skrauti.

Mynd: Getty

Aðalleikarnir Reynolds og Jackman mættu hins vegar búningalausir og klæddust þess í stað klassískum svörtum jakkafötum.

Mynd: Getty

Lively hefur stutt mann sinn í kynningarherferð fyrir myndina, en fyrr í mánuðinum birti hún myndband þar sem Reynolds heldur á Dogpool, hvolpinum úr myndinni, þegar hann var að kynna myndina í London. Sagði hún eiginmanninn vera að „að reyna að gera hana ófríska  aftur“ með myndbandinu. Hjónin eiga dæturnar James, níu ára, Inez, sjö ára, og Betty, fjögurra ára, og fjórða barnið, sem þau hafa enn ekki gefið upplýsingar um kyn eða nafn þess.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Ryan Reynolds (@vancityreynolds)

Reynolds sagði í viðtali við E! nýlega að hann væri alveg til í fleiri börn. „Eins mikið af litlum fótum og hægt er, að hlaupa um, rústa dóti í húsinu. Ég elska það. Eignumst fleiri!“

Deadpool & Wolverine verður frumsýnd hérlendis á morgun.

Mynd: Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Goðsögnin Bob Newhart er látinn

Goðsögnin Bob Newhart er látinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Auglýsing um Osló með Halfdan í fararbroddi slær í gegn

Auglýsing um Osló með Halfdan í fararbroddi slær í gegn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Maðurinn sem var fyrirmyndin að Stjána bláa

Maðurinn sem var fyrirmyndin að Stjána bláa
Fókus
Fyrir 5 dögum

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna