Sigríður Jóna Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Jón Viðar Arnþórsson bardagakappi, eiga von á sínu öðru barni í september. Fyrir eiga þau son saman og Jón Viðar son frá fyrra sambandi.
„Langþráð fjölskyldufrí eftir hvert kvikmyndaverkefnið á fætur öðru og Sigga getur ekki lengur haldið því leyndu að hún er ólétt,“ segir Jón Viðar og birtir myndasyrpu af fjölskyldunni í fríi erlendis.
Jón Viðar er einn eigenda ISR Matrix Iceland og Mjölnis.