fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Fókus

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Fókus
Mánudaginn 22. júlí 2024 20:00

Íbúar hins friðsæla smábæjar eru ekki kátir með organdi kynlífshátíð í næsta nágrenni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar enska smábæjarins Allington í Lincolnskíri eru allt annað en sáttir við fjögurra daga kynlífshátíð sem fram fór í næsta nágrenni við bæinn um helgina.

Swingathon heitir hátíðinn sem stærir sig af því að vera ein fjölmennasta kynlífshátíð Bretlandseyja. Yfir 1.000 gestir mættu til leiks og borguðu tugi þúsunda fyrir aðgöngumiðann enda nóg um að vera fyrir áhugasama. Meðal annars var boðið upp á ýmiskonar leiktjöld, heita potta, froðudiskó, kynlífsdyngjur sem og dagskrárliði eins og butt-plug bingó, hvers framkvæmd verður ekki reynt að útskýra í þessari frétt.

Sérstök áhersla er á hverskonar blæti á hátíðinni og því mátti sjá leðurklætt fólk hópast á hátíðina með ýmiskonar tæki og tól meðferðis.

Í umfjöllun Daily Mail um viðburðinn kemur fram að fjölmargir íbúar hins friðsæla bæjar hafi ekki getað sofið fyrir frygðarstunum og orgum þátttakenda sem hafi staðið nánast linnulaust yfir dagana fjóra. Kvörtunum hafi rignt inn til lögreglu og bæjaryfirvalda og að íbúar séu afar ósáttir við að leyfisnefnd bæjarins hafi gefið viðburðinum grænt ljós.

Skipuleggjendur hátíðarinnar eru þó vígreifir og segja að þrátt fyrir einhverja neikvæðni hafi margir bæjarbúar verið hinir kátustu með viðburðinn. Stefnt er að því að endurtaka leikinn að ári.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín
Fókus
Í gær

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heilabrot: Aðeins örfáir sjá allar konurnar

Heilabrot: Aðeins örfáir sjá allar konurnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Arnór segir gríðarlegan fjölda fólks læknast af stoðkerfisverkjum með hjálp kulda

Arnór segir gríðarlegan fjölda fólks læknast af stoðkerfisverkjum með hjálp kulda
Fókus
Fyrir 5 dögum

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Deilir Íslandsheimsókn í beinu streymi – Þúsundir fylgjenda horfa

Deilir Íslandsheimsókn í beinu streymi – Þúsundir fylgjenda horfa