Undanfarið hefur hávær orðrómur verið á kreiki um að það séu vandræði í paradís hjá stjörnuhjónunum Jennifer Lopez og Ben Affleck.
Fjölmiðlar vestanhafs hafa rætt við heimildarmenn sem segja skilnað í vændum. Einnig hefur verið greint frá því að Lopez sé flutt út af sameiginlegu heimili þeirra og að Affleck sé að leita sér að nýju húsnæði.
Samkvæmt nýjum heimildum Page Six hafi hjónaband þeirra verið „búið“ fyrir mörgum mánuðum, alveg síðan í mars.
Orðrómur um möguleg vandræði í paradís fór fyrst á kreik þegar Affleck mætti ekki með Lopez á Met Gala, þrátt fyrir að hún hafi spilað stórt hlutverk umrætt kvöld. Hjónin gáfu þá skýringu að leikarinn væri hreinlega of upptekinn. En bandarískir fjölmiðlar halda því fram að ástæðan hafi verið yfirvofandi endalok hjónabands þeirra.
Sjá einnig: Sagður vera kominn til vits og ára um samband hans og Jennifer Lopez – „Þetta mun aldrei virka“
Hvorki Ben né Jennifer hafa tjáð sig um þetta. Söngkonan var spurð út í sambandið þeirra á blaðamannafundi fyrir nýju kvikmynd hennar, Atlas. Hún svaraði ekki spurningunni og sagði við blaðamanninn: „Þú veist betur en þetta.“